Hlutabréfaverð Eimskips hefur hækkað um 4% það sem af er degi í 53 milljóna króna viðskiptum en seint í gærkvöldi tilkynnti Gylfi Sigufússon m.a. um það að hann hyggist láta af störfum sem forstjóri félagsins um áramótin.
Gengið á bréfum Eimskips er nú 208 kr. bréfið en stóð fyrir ári síðan í 272 kr.
Þá hefur gengi Kviku hækkað um rúm 5% í dag í 121 milljón króna viðskiptum á First North markaðnum. Hækkunina má rekja til kaupa bankans á Gamma Capital Management en tilkynnt var um undirritun samninga í morgun.
Bréf félagsins standa nú í 8,3 kr. bréfið.