Breytt eignarhald á Bláa lóninu

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins. mbl.is/Golli

Eignarhaldsfélagið Kólfur ehf. sem er 75% í eigu Gríms Sæmundssonar, forstjóra Bláa lónsins, mun eignast alla hluti í Hvatningu hf., sem fer með 39,1% eignarhlut í Bláa lóninu, samkvæmt kaupsamningi þess efnis, að því er segir í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu.

Hvatning hf. hefur til þessa verið 50,55% í eigu Kólfs ehf. og 49,45% í eigu Horns II, en samningur milli félaganna gerir ráð fyrir að Kólfur ehf. taki við öllum hlutum Horns II í Hvatningu hf.

Þá hefur núverandi hluthöfum Horns II verið veittur kaupréttur á sama viðskiptagengi til 31. janúar, á þeim hlutum sem undir voru í viðskiptunum. Samkvæmt tilkynningu Bláa lónsins má rekja tilurð viðskiptanna til þess að líftími Horns II mun renna sitt skeið á næsta ári.

Félag í eigu forstjóra Bláa lónsins mun nú fara með …
Félag í eigu forstjóra Bláa lónsins mun nú fara með alla hluti í Hvatningu hf. sem á 39,1% hlut í Bláa lóninu. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK