Vill kaupa 8 milljarða hlut í lóninu

Bláa lónið
Bláa lónið mbl.is/Árni Sæberg

Eignarhaldsfélagið Kólfur ehf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé framtakssjóðsins Horns II í Bláa lóninu. Hlutur sjóðsins í fyrirtækinu er tæplega 20% og er metinn í bókum hans á ríflega 8 milljarða króna.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, á langstærsta hlutinn í Kólfi en fyrirtækið á um 20% hlut í Bláa lóninu.

Samhliða kaupunum gefst hluthöfum Horns II hins vegar tækifæri til að ganga inn í kaupin og hafa þeir frest til loka janúarmánaðar til þess.

Stærstu hluthafar Horns II eru Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi lífeyrissjóður með 18,17% hlut hvor, Landsbankinn með 7,66% hlut, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda með 5,85% og VÍS með 5,38% hlut, að því er fram kemur í umfjöllun um kaup þessi í  Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK