Sigríður ráðin innri endurskoðandi Arion banka

Sigríður Guðmundsdóttir, innri endurskoðandi Arion banka.
Sigríður Guðmundsdóttir, innri endurskoðandi Arion banka. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin af stjórn Arion banka sem innri endurskoðandi bankans og mun hún hefja störf fljótlega á nýju ári.

Sigríður hefur verið innri endurskoðandi Marel frá árinu 2010. Áður starfaði hún hjá Alcoa m.a. við innra eftirlit og í innri endurskoðun hjá Landsbankanum. Sigríður situr í endurskoðunarnefndum Stefnis og Sparisjóðs Austurlands, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Sigríður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í reikningsskilum og fjármálum frá London School of Economics and Political Science. Hún er jafnframt vottaður innri endurskoðandi (CIA). 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK