Vopnahlé í tollastríði

Donald Trump og Xi Jinping á fundi G20 ríkjanna í …
Donald Trump og Xi Jinping á fundi G20 ríkjanna í gær. AFP

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, og forseti Kína, Xi Jinping, hafa komist að samkomulagi um gera tímabundið hlé á álagningu nýrra verndartolla. Um er að ræða 90 daga hlé á meðan viðræður standa yfir. Forsetarnir komust að þessu samkomulagi í Buenos Aires eftir leiðtogafund G20 ríkjanna en þetta eru fyrstu viðræður þeirra tveggja síðan viðskiptastríð landanna hófst fyrr á árinu. 

Fyrir G20 fundinn hafi Trump tjáð bandarískum fjölmiðlum að hann ætti ekki von á öðru en tollar á ákveðnar vörur frá Kína yrðu hækkaðar í janúar. Um að ræða vörur fyrir 200 milljarða Bandaríkjadala en verndartollarnir voru fyrst kynntir í september. Um er að ræða hækkun tolla úr 10% í 25%. Nú hefur þessum aðgerðum verið frestað en eftir 90 daga verða tollarnir hækkaðir úr 10 í 25% ef ekki verður búið að ná samkomulagi um annað.

Þetta kemur fram í frétt BBC

Donald Trump.
Donald Trump. AFP
Xi Jinping.
Xi Jinping. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK