Meiri afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum

Útflutningur á vöru og þjónustu nam 398,2 milljörðum kr. á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um 41,9 milljarða. eða um 11,8% frá sama tímabili í fyrra. Innflutningur vöru og þjónustu nam hins vegar 318 milljörðum á fjórðungnum og jókst um 31 milljarð eða um 10,9% milli ára.

Afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum nam því 80 milljörðum og jókst um 11 milljarða eða 15,4% milli ára.

„Þetta er þriðji mesti afgangur sem mælst hefur af vöru- og þjónustuviðskiptum hér á landi á þriðja fjórðungi en metið er frá árinu 2016 þegar afgangurinn mældist 100,4 ma. kr. Árið 2015 mældist einnig meiri afgangur en nú en þá nam hann 81,4 ma. kr.,“ segir í Hagsjá Landsbankans. 

Þá kemur fram, að sá afgangur sem verið hafi af vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi á síðustu árum skýrist einungis af jákvæðum þjónustujöfnuði enda hafi vöruskiptajöfnuður verið neikvæður á þessum árstíma frá og með árinu 2014.

„Síðustu árin fyrir hrun var töluvert mikill halli á vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi og skýrðist hann einungis af miklum halla á vöruviðskiptum en aldrei mældist halli á þjónustuviðskiptum á þessu tímabili,“ segir ennfremur. 

Hagsjá Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK