Elín Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hörpu og var valin úr stórum hópi umsækjenda.
Elín lauk grunnnámi í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001, MBA námi frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn 2006 og var í meistaranámi í mannauðsstjórnun í Háskóla Íslands 2009 - 2011. Elín útskrifaðist jafnframt sem stjórnendamarkþjálfi frá Opna háskólanum og Coach University vorið 2018, að því er fram kemur í tilkynningu.
Síðustu 12 ár hefur Elín starfað hjá Opnum kerfum í margvíslegum hlutverkum eins og ráðgjöf í CRM og gæðamálum, forstöðumaður verkefnastýringar, forstöðumaður gæða og öryggismála og framkvæmdastjóri mannauðssviðs og innri þjónustu frá 2011. Í janúar 2018 tók hún jafnframt við starfi framkvæmdastjóra vöru- og hugbúnaðarsviðs samhliða starfi mannauðsstjóra. Þar áður starfaði hún sem viðskiptastjóri hjá Intrum Justitia og rak eigin sportvöruverslun.
Elín hefur jafnframt verið virk í félagsmálum og er meðal annars einn stofnenda Vertonet – hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni og verið í stjórn Mannauðs - félags mannauðsfólks á Íslandi, viðskiptanefnd FKA og Leiðtogaauði.
Elín tekur til starfa 1. febrúar nk.