Hlutabréf Icelandair hækka um 7%

mbl.is/Eggert

Verð hlutabréfa Icelandair hafa hækkað um rúm 7% það sem af er degi í kauphöllinni en alls nema viðskipti með félagið 110 milljónum króna. Miklar sveiflur hafa verið á verði hlutabréfa í félaginu undanfarið en bréfin hafa lækkað um rúm 26% í verði undanfarinn mánuð. Síðustu viðskipti voru á genginu 8,83.

Á hluthafafundi Icelandair Group 30. nóvember var samþykkt tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé um allt að 625 milljónir króna að nafnverði. Stjórn Icelandair hefur ákveðið að nýta ekki heimild sína til þess að halda útboð í desember 2018 fyrir allt að 499 milljónir króna að nafnvirði.

Þess í stað er stefnt að einu útboði, með forgangsréttarfyrirkomulagi, þar sem boðið verður hlutafé að nafnverði allt að 625 milljónir króna fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2019. Í aðdraganda útboðsins verður birt lýsing. Stjórn mun ákvarða stærð útboðsins, útboðsgengi, greiðslukjör hinna nýju hluta og aðra skilmála útboðs.

Tilgangur Icelandair Group með hlutafjáraukningunni er að styrkja efnahag félagsins til að vera í stakk búið að vaxa og grípa tækifæri sem kunna að opnast í núverandi rekstrarumhverfi en félagið mun fá afhentar sex nýjar Boeing MAX-flugvélar á árinu 2019.

Ekki er þörf á að hlutafjáraukning fari fram fyrir næstkomandi áramót miðað við þær forsendur sem liggja fyrir um rekstur og efnahag félagsins og kynntar voru á nýliðnum hluthafafundi, segir í tilkynningu sem send var í kauphöllina fyrir nokkrum dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK