Arion banki hlaut tvenn verðlaun

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Ómar

Arion banki hlaut tvenn verðlaun á alþjóðlegu verðlaunahátíðinni Banking Technology Awards sem var haldin í nítjánda sinn á fimmtudaginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Arion banki var tilnefndur í tveimur flokkum og atti kappi við banka á borð við Credit Suisse, Bank of America, Barclays, BBVA, Morgan Stanley og Royal Bank of Scotland svo dæmi séu tekin. Flokkarnir voru „Besta aðferðafræðin við þróun stafrænna lausna“ og „Besta stafræna lánalausnin“.

Arion banki hlaut fyrri verðlaunin fyrir verkefnahraðalinn „Stafræn framtíð“ sem þróunarverkefni bankans fara í gegnum. Í hverjum hraðli kemur saman starfsfólk úr ólíkum deildum bankans og algengast er að hver hraðall taki um 16 vikur. Niðurstaðan í hvert sinn er ný fullunnin stafræn þjónusta. Í gegnum hraðalinn hafa farið 19 stafrænar lausnir sem viðskiptavinir hafa tekið opnum örmum, að því er segir í tilkynningunni.

Seinni verðlaunin hlaut bankinn fyrir eitt þessara þróunarverkefna, greiðslumat og umsóknarferli íbúðalána á vefnum. Verkefnið gerir viðskiptavinum bankans kleift að fá gilt greiðslumat á þremur mínútum og sækja um íbúðalán á innan við fimmtán mínútum, ferli sem áður tók daga eða vikur.

Arion banki var eini bankinn sem fékk verðlaun í tveimur flokkum á hátíðinni. Verðlaunin eru fjórðu alþjóðlegu verðlaunin á árinu sem bankinn hlýtur fyrir stafræna bankaþjónustu og bætta þjónustuupplifun. Verðlaunin eru veitt af enska ráðgjafa- og viðburðastjórnunarfyrirtækinu Informa.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Ljósmynd/Aðsend

„Við erum fyrst og fremst ánægð með hve vel viðskiptavinir okkar hafa tekið þeim nýju stafrænu lausnum sem við höfum kynnt til leiks á undanförnum árum. Því auðvitað er markmið okkar með þróun nýrra lausna fyrst og fremst að bæta þjónustuna og gera hana þægilegri fyrir viðskiptavini,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, í tilkynningunni.

„Viðurkenning sem þessi sýnir okkur að við erum framarlega í heiminum þegar kemur að framsækinni og nútímalegri bankaþjónustu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK