Kæra samruna Olís og Haga

Samkaup hafa kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að heimila samruna Haga og …
Samkaup hafa kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að heimila samruna Haga og Olís. mbl.is/Eggert

Samkaup hafa kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að heimila samruna Haga, Olís og fasteignafélagsins DGV til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Krefst fyrirtækið þess að samruninn verði ógiltur eða honum sett strangari skilyrði. Þetta kemur fram í tilkynningu Haga til kauphallarinnar.

Segir þar að Samkaup gefi upp þá ástæðu að skort hafi á rannsókn málsins hjá Samkeppniseftirlitinu og ekki gengið nógu langt við setningu skilyrða fyrir samrunanum. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála mun taka málið til efnislegrar meðferðar en ekki liggur fyrir hversu langan tíma afgreiðsla málsins mun taka hjá nefndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK