NSA fjárfestir fyrir 60 milljónir í Ankeri

Frá undirritun fjárfestingasamningsins. Frá vinstri; Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, …
Frá undirritun fjárfestingasamningsins. Frá vinstri; Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Leifur Arnar Kristjánsson, stjórnarformaður Ankeri Solutions, Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri Solutions, og Hermann Kristjánsson, stjórnarmaður í Ankeri. Ljósmynd/Aðsend

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur fjárfest í fyrirtækinu Ankeri Solutions fyrir 60 milljónir króna. Eftir fjárfestinguna mun Nýsköpunarsjóður eiga um 12% hlut í félaginu, en hugmyndin er að fyrirtækið miðli upplýsingum milli eigenda og leigjenda flutningaskipa, meðal annars til að ná fram betri orkunýtingu og minni útblæstri skipaflotans.

Í tilkynningu frá félaginu segir að félagið vilji búa til vettvang sem sé viðurkenndur á alþjóðavísu þar sem upplýsingum um hagkvæmni skipa sé safnað saman og þær tengdar við frammistöðuábyrgðir í þeim samningum sem gilda milli eigenda og leigjenda skipa. Sú tækni sem Ankeri er að þróa miðar að því að eigendur skipa geti markaðsett þau út frá rekstrarhagkvæmni og að leigjendur geti valið skip út frá viðurkenndum upplýsingum um getu, rekstur, umhverfisáhrif og fleiri þætti.

Ankeri solutions ehf. var stofnað árið 2016 af Leifi Kristjánssyni og Kristni Aspelund sem hafa um áratuga skeið starfað við markaðssetningu, hönnun og framleiðslu á hugbúnaðartækni í skiparekstri.

Haft er eftir Huld Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins að með fjárfestingunni lýsi sjóðurinn yfir tiltrú á verkefninu. „Við höfum um árabil fylgst með þeim Leifi og Kristni í störfum sínum og vitum að þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af alþjóðlegum skipamarkaði. Með þeim tæknilausnum sem þeir eru nú að vinna að er það von okkar að enn á ný verði íslensk tæknifyrirtæki í farabroddi þegar kemur að alþjóðlegum úrlausnarefnum,“ er haft eftir henni.

Fyrsta útgáfa af vöru Ankeri fór á markað í haust og er haft eftir Kristni, meðstofnanda og framkvæmdastjóra félagsins, að viðtökurnar hafi verið góðar og félagið vilji nú taka næstu skref í þróun kerfisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK