Gerir samning við Etix Everywhere fyrir gagnaver á Blönduósi

Forstjórarnir Hörður Arnarson og Björn Brynjúlfsson innsigla samninginn.
Forstjórarnir Hörður Arnarson og Björn Brynjúlfsson innsigla samninginn. Ljósmynd/Aðsend

Landsvirkjun og gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere Iceland ehf., dótturfélag Etix Everywhere Borealis, hafa undirritað rafmagnssamning um afhendingu 25 MW til nýs gagnavers á Blönduósi. Gagnaverið hefur hafið rekstur og standa þegar yfir framkvæmdir við stækkun þess.

Gagnaverið á Blönduósi verður fyrsti stórnotandi rafmagns sem tengist beint við tengivirki Landsnets við Laxárvatn í Blönduósbæ, að því er segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Fram kemur, að fyrirtækið verði þriðji viðskiptavinur Landsvirkjunar í ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi gangi samningar eftir.

„Umsvif Etix Everywhere Borealis hafa aukist hratt undanfarin misseri og verður gagnaverið á Blönduósi stærsta gagnaver sem fyrirtækið kemur að á Íslandi, en að auki rekur fyrirtækið gagnaver í Reykjanesbæ. Áætlað er að tölvur í gagnaverum í beinni eða óbeinni eigu Etix Everywhere Borealis verði um 30 þúsund talsins eftir þessa stækkun, en nýju gagnaverin eru svokölluð „High Performance Computing“ ver, þar sem mikil reiknivinnsla er fyrir hendi,“ segir í tilkynningunni.

Eiríkur S. Svavarsson, lögmaður Etix Everywhere Borealis, Árni Jensen, framkvæmdastjóri …
Eiríkur S. Svavarsson, lögmaður Etix Everywhere Borealis, Árni Jensen, framkvæmdastjóri hjá Etix Everywhere Borealis, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, Björn Brynjúlfsson, forstjóri Etix Everywhere Borealis, Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Gylfi Már Geirsson, yfirmaður orkukaupa hjá Landsvirkjun, Vala Valþórsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og Geir Arnar Marelsson hdl, lögfræðingur hjá Landsvirkjun. Ljósmynd/Aðsend

Þá segir, að endurnýjanlegar orkuauðlindir, samkeppnishæf kjör og íslenskt veðurfar eigi þátt í að skapa hagstæðar aðstæður fyrir öflugan gagnaversiðnað á Íslandi. Kalt og stöðugt loftslag dragi úr kostnaði við kælingu á tölvubúnaði sem hitni mikið við notkun. Loftkælingin komi í veg fyrir að eyða þurfi mikilli orku í að kæla búnaðinn og því sé hagkvæmara að knýja hann á Íslandi en víða annars staðar í heiminum.

„Orkan sem samningurinn nær til verður afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. Á þessu ári tók Landsvirkjun að fullu í notkun tvær nýjar aflstöðvar, Þeistareykjastöð, nýja jarðvarmastöð á Norðausturlandi og Búrfellsstöð II, neðanjarðarvatnsaflsstöð á Suðurlandi. Landsvirkjun rekur nú 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur.  Samningurinn er háður tilteknum skilyrðum til þess að öðlast fullnaðargildi,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Eftirspurn eftir orku Landsvirkjunar fer áfram vaxandi

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í tilkynningu, að eftirspurn eftir orku Landsvirkjunar, sem unnin sé úr endurnýjanlegum orkugjöfum, fari áfram vaxandi og með þessum samningi hafi enn eitt öflugt fyrirtækið bæst í hóp alþjóðlegra viðskiptavina Landsvirkjunar.

„Samningurinn staðfestir samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum raforkumörkuðum, rennir fleiri stoðum undir reksturinn og styður við fjölbreytta uppbyggingu iðnaðar á Íslandi.“

Björn Brynjúlfsson, forstjóri Etix Everywhere Borealis, segir að fyrirtækið sé í uppbyggingarfasa á nýrri kynslóð gagnavera sem nýti íslenskar umhverfisaðstæður og sérþekkingu Etix Everywhere í hönnun og smíði gagnaverslausna.

„Uppbyggingin á Blönduósi er markvisst skref í að minnka umhverfisfótspor viðskiptavina okkar og samningsorkan gerir okkur kleift að fara í umtalsverðar stækkanir þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK