Tölvutek sektað fyrir villandi fullyrðingar

Neytendastofa telur að orðaval Tölvuteks leiði til þess að neytendur …
Neytendastofa telur að orðaval Tölvuteks leiði til þess að neytendur ætli að með því að eiga viðskipti við félagið sé tryggt að hagsmuna þeirra sé betur gætt en eigi þeir viðskipti við aðra seljendur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Neytendastofa hefur lagt 250.000 kr. stjórnvaldssekt á Tölvutek fyrir villandi fullyrðingar í auglýsingum.

Fram kemur á vef Neytendastofu, að í auglýsingabæklingi Tölvuteks hafi fyrirtækið fullyrt að það væri umboðsaðili fyrir mörg stærstu tölvumerki heims.

Var fyrirtækinu gerð grein fyrir því að fái fullyrðingar um að auglýsandi sé umboðsaðili ekki staðist geti það verið til þess að brjóta gegn reglum um óréttmæta viðskiptahætti. Í svari fyrirtækisins kom fram að fullyrðingin væri almenns eðlis og ekki hafi verið vísað til neinna sérstakra merkja annarra en þeirra sem fram koma á sömu blaðsíðu og umrædd fullyrðing.

Í ljósi þess að Tölvutek færði ekki fram nein gögn sem sýndu fram á að félagið væri viðurkenndur umboðsaðili umræddra merkja hefur Neytendastofa bannað fyrirtækinu frekari birtingu umræddrar fullyrðingar.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK