Christin ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu

Christin Irma Schröder hefur verið ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu.
Christin Irma Schröder hefur verið ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu. Ljósmynd/Aðsend

Christin Irma Schröder hefur verið ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu og mun hún hefja störf 15. janúar. Húsavíkurstofa er samnefnari fyrirtækja í ferðaþjónustu í auglýsinga- og kynningarmálum.

Christin er þrítug að aldri og hefur undanfarið ár starfað hjá PriceWaterhouse Coopers en var áður í starfi aðstoðarmanns framkvæmdastjóra hjá PCC Bakki Silicon. Hún er með MS-próf í fjölþjóðasamskiptum en lauk þar áður BA-prófi í Evrópufræðum. Christin er þýsk en hefur verið búsett á Húsavík í nokkur ár.

Í tilkynningu segir að um nýtt starf sé að ræða sem er fjármagnað meðal annars með rekstrarstyrk frá Norðurþingi. Húsavíkurstofa var stofnuð árið 2002, þá undir heitinu Markaðsráð Húsavíkur og nágrennis. Núverandi nafngift var tekin upp árið 2010.

Stofan hefur í gegnum tíðina unnið ýmis verkefni og var á sínum tíma meðal annars rekstraraðili Mærudaga, upplýsingamiðstöðvarinnar á Húsavík sem og tjaldsvæðisins. Stjórn Húsavíkurstofu sagði sig frá öllum rekstri árið 2016 og síðan þá hefur farið fram þarfagreining á verkefnum þeim sem slíkt félag ætti að standa undir.

Fram kemur í tilkynningunni að eftir gríðarlegan vöxt ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin ár sé nú komið að því að dvalartími hafi styst og því minni prósenta ferðamanna sem sækir út á land. Sveitarfélög hafa í samstarfi við ferðaþjónustusamtök blásið til sóknar í áfangastaðamarkaðssetningu og bætist Norðurþing nú í þeirra hóp. Mun samstarfið við Húsavíkurstofu meðal annars fela í sér samræmingu á upplýsingagjöf til ferðamanna og umsjón með markaðssetningu hafna Norðurþings með tilliti til skemmtiferðaskipa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK