Þóranna til SVÞ

Þóranna K. Jónsdóttir.
Þóranna K. Jónsdóttir.

Þóranna K. Jónsdóttir hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu. Starfið er nýtt, SVÞ ætlar að leggja aukna áherslu á upplýsingamiðlun og notkun stafrænna miðla. 

„Þóranna hefur verið sjálfstætt starfandi markaðsráðgjafi um árabil með áherslu á stefnumótun markaðsmála og stafræna markaðssetningu. Þóranna hefur starfað með fjölbreyttum hópi fyrirtækja svo sem AwareGOGagarín, Opna háskólanum, Sóley Organics, SimplyBook.me, RóRó o.fl. Hún hefur verið virk í sprota- og nýsköpunarumhverfinu og hefur m.a. starfað með Nýsköpunarmiðstöð, verið mentor hjá Icelandic Startups o.fl.

Áður starfaði Þóranna sem verkefnastjóri hjá Kadeco, rak eigið fyrirtæki í upplýsingatækniþjónustu, í markaðsmálum hjá Sparisjóðnum, hjá auglýsingastofunni Góðu fólki og hjá auglýsingastofunni Publicis í London. Hún er með MBA-gráðu með áherslu á stefnumótun markaðsmála frá University of Westminster í London og er vottaður sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu frá DigitalMarketer,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK