Kerecis metið á 9,5 milljarða

Kerecis byggir vöruþróun sína á efnum úr fiskroði.
Kerecis byggir vöruþróun sína á efnum úr fiskroði.

Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis, sem framleiðir sáraumbúðir úr fiskroði, vinnur nú að hlutafjáraukningu og hyggst sækja 7,5 milljónir dollara, jafnvirði 900 milljóna króna, til þess að styðja við frekari vöxt þess á komandi misserum.

Í bréfi sem stofnandi og forstjóri fyrirtækisins hefur sent hluthöfum og Morgunblaðið hefur undir höndum kemur fram að heildarvirði félagsins sé allt að 9,5 milljarðar króna, miðað við nýleg viðskipti með hluti í því, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Tekjur fyrirtækisins hafa aukist mikið á undanförnum árum. Þannig gera áætlanir þess ráð fyrir að tekjurnar verði allt að 40 milljónir dollara, jafnvirði 4,8 milljarða króna, á næsta ári. Gangi þær spár eftir hefur salan áttfaldast frá árinu 2016. Meðal hluthafa í Kerecis eru félögin BBL 34 ehf., sem er að stórum hluta í eigu Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, stofnanda og forstjóra félagsins, og Baldvins Björns Haraldssonar, tryggingafélagið VÍS og 1924 ehf. sem er í eigu Marinós Marinóssonar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK