Farþegum fjölgaði um 8%

Flugvélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli.
Flugvélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert

Farþegafjöldi Icelandair í janúar var 227 þúsund og jókst hann um 8% miðað við janúar á síðasta ári. 

Framboð var aukið um 10%. Sætanýting var 71,9% samanborið við 72,3% í janúar í fyrra, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair Group. 

Farþegar Air Iceland Connect voru um 20 þúsund og fækkaði um 12% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 57,1%.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári. Fraktflutningar voru óbreyttir á milli ára.  

Seldum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 16%. Herbergjanýting var 64,9% samanborið við 69,9% í janúar 2018. Skýrist það aðallega af lakari herbergjanýtingu á landsbyggðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK