Bréfin féllu niður um 15,9%

Gengi bréfa Icelandair lækkaði mikið í dag eftir slæma rekstrarniðurstöðu …
Gengi bréfa Icelandair lækkaði mikið í dag eftir slæma rekstrarniðurstöðu síðasta árs sem kynnt var í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um 15,91% í viðskiptum í Kauphöllinni í dag eftir að uppgjör félagsins var kynnt í gær eftir lokun markaða. Samtals áttu sér stað viðskipti fyrir 316 milljónir og var gengi bréfa félagsins við lokum 8,67 krónur á hlut.

Í gær var greint frá því að Icelanda­ir hafi tapað 6,7 millj­örðum króna á síðasta ári. Var ástæðan sögð „sam­keppni í milli­landa­flugi, lág og oft ósjálf­bær far­gjöld og mik[il] hækk­un eldsneyt­is­verðs. Jafn­framt höfðu breyt­ing­ar á sölu- og markaðsstarf­semi fé­lags­ins, sem og ójafn­vægi í leiðar­kerfi nei­kvæð áhrif á af­kom­una.“

Í fyrstu viðskiptum dagsins var gengið 8,3 krónur á hlut, en það var 20% fall á bréfunum. Þegar leið á daginn náðist jafnvægi nokkuð ofar og eins og fyrr segir endaði gengið í 8,67 krónum á hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK