WOW semur við leigusala

Áfangastaðirnir sem WOW air kynnti 14. janúar að flogið yrði …
Áfangastaðirnir sem WOW air kynnti 14. janúar að flogið yrði til. Mynd/WOW

Gengið var frá samkomulagi á milli WOW air og leigusala flugfélagsins í lok
síðustu viku. Þar með hefur síðasta skilyrðið fyrir fjárfestingu Indigo Partners í félaginu verið uppfyllt. Unnið er að því að leggja lokahönd á viðskiptin. Þetta kemur fram í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins í dag.

Forsvarsmenn WOW air gengu undir lok síðustu viku frá heildstæðu samkomulagi við leigusala lággjaldaflugfélagsins, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Með samkomulaginu hefur síðasta skilyrðinu sem stendur í vegi fyrir fjárfestingu Indigo Partners í flugfélaginu verið fullnægt en frestur sem skuldabréfaeigendur WOW air veittu félaginu til þess að ná samkomulagi við Indigo Partners rennur út á morgun, 28. febrúar. 

Fréttin í heild í Markaðnum í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK