Már sakar fulltrúa bankaráðs um rangfærslur

Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands.
Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands. mbl.is/Hari

Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að tveir bankaráðsmenn hafi farið fram með rangar fullyrðingar er varðar greinargerð Seðlabankans til forsætisráðherra.

Þau Sigurður Kári Kristjánsson og Þórunn Guðmundsdóttir, sem sitja í bankaráði Seðlabankans, sögðu að afskipti Seðlabankans af störfum bankaráðs hafi verið „óforsvaranleg“. Í bókun þeirra kom fram að lög­fræðiráðgjöf Seðlabank­ans hafi gert „veru­leg­ar at­huga­semd­ir við fyr­ir­huguð efnis­tök“ bankaráðs þar sem efnis­tök­in gætu valdið því að trúnaður yrði brot­inn. Þetta hafi lög­fræðiráðgjöf Seðlabank­ans gert með minn­is­blaði til bankaráðs 7. des­em­ber sl.

Í yfirlýsingu Más segir að fullyrðingar þess efnis að minnisblaðið hafi falið í sér tilraun Seðlabankans til að koma í veg fyrir að bankaráð svaraði ráðherra kæmu verulega á óvart og væru fjarri öllum sanni.

„Samkvæmt lögum sit ég bankaráðsfundi með tillögurétt og tek þátt í umræðum. Ég vík þó af fundi ef bankaráð ákveður. Ég sat ekki þá fundi þar sem bankaráðið vann að greinargerð sinni en flesta fundi þar sem bankinn lagði fram gögn í málinu eða útskýrði sjónarmið sín. Þá sat ég fund þar sem rætt var um fyrirkomulag vinnunnar og aðkomu starfsliðs bankans að henni. Á engum þessara funda svo mikið sem ýjaði ég að því að bankaráðið ætti ekki að svara forsætisráherra. Reyndar þvert á móti,“ segir Már meðal annars.

Ekki gefinn kostur á að svara ásökunum

Hann ítrekar að Seðlabankinn hafi engin tök á því að hafa áhrif á starfsemi bankaráðs og bókun Sigurðar og Þórunnar hafi komið sér verulega á óvart.

Bankinn og starfsfólk hans veitir bankaráði upplýsingar og álit. Það hefur hins vegar engin tök á að stöðva ákvarðanatöku bankaráðs. Bankaráðið er með eigin formann og getur fundað án seðlabankastjóra og annarra starfsmanna bankans og tekið þær ákvarðanir sem það vill. […] Umrædd bókun kemur mér og þeim sem í hlut eiga innan bankans verulega á óvart. Ekki var gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum varðandi þær harðorðu ásakanir sem fram koma í umræddri bókun áður en hún var birt,” segir Már.

Yfirlýsingu Más má í heild sinni sjá hér að neðan.

Yfirlýsing vegna rangra fullyrðinga tveggja bankaráðsmanna

Með greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands til forsætisráðherra, dags. 21. febrúar 2019, fylgdi bókun tveggja bankaráðsmanna þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við minnisblað frá lögfræðiráðgjöf bankans, dags. 7. desember 2018, um efnistök í greinargerð ráðsins með svari til ráðherra sem þá lá fyrir. Í bókuninni er það kallað óforsvaranleg afskipti af störfum bankaráðs. Í henni er fullyrt að minnisblaðið hafi falið í sér tilraun Seðlabankans til að koma í veg fyrir að bankaráðið svaraði ráðherra. Þessi fullyrðing kom verulega á óvart og er fjær öllu sanni.

Samkvæmt lögum sit ég bankaráðsfundi með tillögurétt og tek þátt í umræðum. Ég vík þó af fundi ef bankaráð ákveður. Ég sat ekki þá fundi þar sem bankaráðið vann að greinargerð sinni en flesta fundi þar sem bankinn lagði fram gögn í málinu eða útskýrði sjónarmið sín. Þá sat ég fund þar sem rætt var um fyrirkomulag vinnunnar og aðkomu starfsliðs bankans að henni. Á engum þessara funda svo mikið sem ýjaði ég að því að bankaráðið ætti ekki að svara forsætisráherra. Reyndar þvert á móti. Auk þess gaf ég starfsliði bankans fyrirmæli um að aðstoða bankaráðið eftir því sem um væri beðið og senda fljótt og greiðlega umbeðnar upplýsingar og álitsgerðir. Það mætti eftir atvikum fara beint og án yfirferðar minnar enda bankaráðið hluti af Seðlabankanum. Fjölmargir starfsmenn lögðu á sig mikla vinnu til þess að aðstoða bankaráðið á þeim fjölmörgu viðbótarfundum sem til þurfti til þess að klára svarið til ráðherra. Einnig réð bankinn utanaðkomandi starfsmann til að vinna með bankaráðinu að greinargerð sinni.

Formaður bankaráðs óskaði hinn 5. desember eftir skriflegum athugasemdum frá Seðlabankanum við drögum að svari til ráðherra sem þá lágu fyrir. Minnisblað lögfræðiráðgjafar var hluti af þeim skriflegu athugasemdum og barst ráðinu 7. desember 2018. Efni þess laut að þeim lagaákvæðum sem eiga við um eftirlitsvald ráðherra gagnvart stofnun eins og Seðlabanka Íslands. Lögfræðiráðgjöf bankans er bankaráði innan handar eftir því sem óskað er eftir enda eins og áður segir er bankaráðið hluti Seðlabankans. Álit sem þannig eru veitt eru þá  unnin af bestu vitund og samvisku lögfræðinga bankans en það er síðan undir bankaráðinu sjálfu komið í hvaða mæli það er sammála slíkum álitum. Það er ekkert við það að athuga að bankaráðið eða einstakir bankaráðsmenn geri efnislegar athugasemdir við slík álit og að um þau eigi sér stað rökræn efnisleg umræða. Í þessu tilfelli var því ekki til að dreifa.

Bankinn og starfsfólk hans veitir bankaráði upplýsingar og álit. Það hefur hins vegar engin tök á að stöðva ákvarðanatöku bankaráðs. Bankaráðið er með eigin formann og getur fundað án seðlabankastjóra og annarra starfsmanna bankans og tekið þær ákvarðanir sem það vill.

Að lokum er rétt að árétta að umrædd bókun kemur mér og þeim sem í hlut eiga innan bankans verulega á óvart. Ekki var gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum varðandi þær harðorðu ásakanir sem fram koma í umræddri bókun áður en hún var birt.

Már Guðmundsson

seðlabankastjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK