Samruni Kviku og Gamma samþykktur

Samruni Kviku og Gamma hefur verið samþykktur.
Samruni Kviku og Gamma hefur verið samþykktur. mbl.is/Árni Sæberg

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Kviku banka hf. og Gamma Capital Management hf.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þess efnis var birt í dag, að því er segir í tilkynningu.

„Að undangenginni rannsókn er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins sú að ekki séu fyrir hendi vísbendingar um að samruninn leiði til myndunar eða styrkingar markaðsráðandi stöðu samrunaaðila á neinum markaði. Jafnframt verður ekki séð að samkeppni á mörkuðum raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti,“ segir í niðurstöðu mats á samkeppnislegum áhrifum af samruna fyrirtækjanna.

Fram kemur að með hliðsjón af rekstrarstarfsemi samrunaaðila taki samruninn nær eingöngu til eignastýringar þar sem umsvif Gamma á öðrum sviðum fjármálaþjónustu sem Kvika býður einnig upp á, séu afar lítil.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að samruninn gefi ekki tilefni til íhlutunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK