Ekki fleiri íbúðir settar á sölu í sjö ár

Íslenski fasteignamarkaðurinn er nú sagður einkennast af byggingu nýrra íbúða. …
Íslenski fasteignamarkaðurinn er nú sagður einkennast af byggingu nýrra íbúða. Mynd úr safni af Norðlingaholtinu í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

1.880 íbúðir voru settar á sölu í janúar og er þetta mesta framboð sem hefur mælst undanfarin sjö ár að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. 

Voru 154% fleiri nýjar íbúðir settar á sölu árið 2018 en árið á undan og segir í skýrslunni að íslenski fasteignamarkaðurinn einkennist nú af byggingu nýrra íbúða. Þetta sjáist m.a. á fjölgun þeirra á skrám fasteignasala, en óvenjumargar nýbyggingar komu inn til sölu í janúar sl., eða 362 íbúðir yfir landið allt. „Aðeins einu sinni frá árinu 2013 hafa fleiri nýbyggingar verið settar á sölu í stökum mánuði,“ segir í fréttatilkynningu.

Mikill meirihluti íbúða selst þá nú undir ásettu verði á höfuðborgarsvæðinu og hefur verð ekki mælst jafnlágt síðan í byrjun árs 2013. Einungis 4% íbúða á höfuðborgarsvæðinu voru seld yfir ásettu verð í janúar, 14% íbúða seldust á ásettu verði og 83% undir ásettu verði.

Íbúðum á landinu öllu fjölgaði um 2.400 í fyrra og eru þær nú 140.600 talsins. Til samanburðar fjölgaði íbúðum um 1.800 árið 2017. Um er að ræða mestu árlegu fjölgun íbúða síðan 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum um 542. Utan höfuðborgarsvæðisins varð mesta fjölgunin í Reykjanesbæ þar sem 227 íbúðir bættust við. 

Þá var 756 leigusamningum þinglýst hér á landi í janúar og er það 16% fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Flestum leigusamningum utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á Suðurnesjum, en þar var 78 leigusamningum þinglýst og samsvarar það 18% fjölgun frá fyrra ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK