Gengi Icelandair lækkar töluvert

Bréf Icelandair hafa lækkað um 7,3% það sem af er …
Bréf Icelandair hafa lækkað um 7,3% það sem af er degi. mbl.is/Eggert

Gengi Icelandair Group hefur lækkað um 7,3% það sem af er degi í Kauphöll Íslands.

Gengi bréfa Icelandair stóð í 9 kr. bréfið við upphaf dags en er nú komið í 8,34 kr.

Virðist vera sem svo að markaðurinn sé að bregðast við fregnum af gangi mála hjá WOW air en meirihluti skuldabréfaeigenda WOW air hefur komist að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins. Kom það fram í fréttatilkynningu frá WOW air upp úr hádegi.

Um það leyti féll gengi Icelandair Group um 10% en lægst hefur gengi félagsins farið í 8 kr. bréfið í dag.

Viðskipti með bréf Icelandair hafa þó verið takmörkuð og nemur heildarfjárhæð þeirra um 45 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK