Eignir félagsins hverfi ekki af markaði

mbl.is/​Hari

Samkeppniseftirlitið beinir því til viðkomandi stjórnvalda og þeirra aðila sem munu halda á viðkomandi eignum WOW air í framhaldi stöðvunar á rekstri félagsins að hugað sé að samkeppnislegum áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar verða um úrlausn málsins.

Meðal þess sem beint er til þessara aðila er að þeir geri allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að eignir félagsins hverfi ekki af markaði og að flugmálayfirvöld liðki fyrir því því að eignir flugfélaga sem sem hætta starfsemi geti nýst nýjum aðilum í rekstri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu, sem lesa má í heild sinni hér að neðan:

Samkvæmt tilkynningu á vef Samgöngustofu og vef flugfélagsins WOW air morguninn 28. mars 2019 hefur flugfélagið hætt starfsemi. Í því ljósi vill Samkeppniseftirlitið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri til viðkomandi stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings. Jafnframt beinir Samkeppniseftirlitið tilteknum tilmælum til viðkomandi stjórnvalda og þeirra aðila sem munu halda á viðkomandi eignum WOW í framhaldinu, sbr. nánar niðurlag tilkynningarinnar.

Samkeppni WOW í áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið mikilvæg

Samkeppni í viðskiptum er mikilvæg þar sem hún eykur velferð neytenda og stuðlar að hagkvæmni í atvinnulífinu. Á þetta við um áætlunarflug til og frá Íslandi en eðli málsins samkvæmt eru flugsamgöngur við önnur ríki afar mikilvægar fyrir íslenskt samfélag. Hefur reynslan sýnt að aukin samkeppni í flugi til og frá landinu lækkar verð og eykur tíðni ferða og bætir þar með þjónustu við neytendur. Þá er samkeppni á þessu sviði ein grundvallarforsendan fyrir vexti og viðgangi ferðaþjónustu á Íslandi.

WOW hefur verið mikilvægur keppinautur í áætlunarflugi til og frá Íslandi frá því félagið hóf starfsemi um mitt ár 2012 og yfirtók í framhaldinu Iceland Express. Þegar Iceland Express kom inn á markaðinn árið 2003 með flugi til Kaupmannahafnar og London lækkaði verð um allt að 30-40%. Við innkomu Iceland Express á markaðina fyrir flug til Boston og New York árið 2010 lækkaði verð um allt að helming. Verðkannanir óháðra aðila á liðnum árum sýna að þessi verðsamkeppni hélst með innkomu WOW bæði í flugi til og frá Evrópu og Norður-Ameríku. Þessi aukna samkeppni hefur því leitt til mikils sparnaðar fyrir íslenskan almenning og fyrirtæki. Auk þess hefur lægra verð og aukin tíðni flugferða leitt til verulegrar fjölgunar ferðamanna en ferðaþjónusta er þegar orðin ein stærsta atvinnugrein landsins.

Meðal þess sem beint er til þessara aðila er að …
Meðal þess sem beint er til þessara aðila er að flugmálayfirvöld liðki fyrir því því að eignir flugfélaga sem sem hætta starfsemi geti nýst nýjum aðilum í rekstri. mbl.is/Eggert

Brotthvarf WOW mun að óbreyttu auka samþjöppun

Hlutdeild WOW air í áætlunarflugi til og frá Íslandi var 25-30% árið 2018 og hlutdeild Icelandair um 35-40% miðað við fjölda farþega. Með tengifarþegum var hlutdeild WOW 35-40% og hlutdeild Icelandair 40-45% sama ár. Hlutdeild annarra keppinauta, þ.e. erlendra flugfélaga, var mun minni og dreifðari. Með vísan til þessa þarf ekki að fjölyrða um að brotthvarf WOW af íslenska markaðnum skilur eftir sig umtalsvert skarð. Samþjöppun í flugi mun því aukast verulega, a.m.k. til skammst tíma.

Mikilvægi afgreiðslutíma WOW á flugvöllum

Þeir afgreiðslutímar (e. slot) á flugvöllum sem WOW hefur búið yfir geta verið mjög mikilvægir í samkeppni til og frá Íslandi. Í því sambandi er mikilvægt að gera greinarmun á flugfélögum sem fljúga „frá Íslandi“ og flugfélögum sem fljúga „til Íslands“. Flugfélög sem fljúga „frá Íslandi“ miða áætlun sína við að Keflavíkurflugvöllur sé þeirra heimahöfn og flug hefjist þar alla jafna að morgni dags og/eða að flugvöllurinn sé þeirra tengistöð. WOW og Icelandair hafa verið í þessum flokki flugfélaga og er eftirspurn þeirra eftir afgreiðslutímum því mikil á morgnana og síðdegis og þá er Keflavíkurflugvöllur þéttsetinn. Flugfélög sem fljúga „til Íslands“ eru hins vegar öll erlend flugfélög sem fljúga á milli áfangastaða erlendis og Íslands. Heimahöfn eða tengistöðvar þessara flugfélaga eru eðli máls samkvæmt erlendir flugvellir. Ákvarðanir félaganna um einstaka áfangastaði, þ.á m. Ísland, geta breyst með skömmum fyrirvara, enda eru viðskiptahagsmunir þeirra ekki tengdir Íslandi með sama hætti og þeirra flugfélaga sem reka starfsemi sína héðan.

Flugfélög sem fljúga „frá Íslandi“ eru mikilvæg fyrir íslenska neytendur enda er þjónusta þeirra ekki síst sniðin að þeirra þörfum. Af þessu leiðir að afgreiðslutímar sem WOW býr yfir bæði á Keflavíkurflugvelli sem og á öðrum erlendum flugvöllum sem félagið hefur flogið til eru mikilvægir og verðmætir fyrir þá aðila sem vilja koma inn á íslenska markaðinn og hefja flug „frá Íslandi“ þar sem Keflavíkurflugvöllur er heimahöfn. Þessir afgreiðslutímar eru einnig mikilvægir við uppbyggingu leiðakerfis í áætlunarflugi til og frá Íslandi sem þjónar farþegum á leið yfir Atlantshafið. Afgreiðslutímar WOW geta því verið forsenda þess að nýr aðili geti hafið samkeppnishæft áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli.

Eignir flugfélaga

Þrátt fyrir að flugfélagið WOW air hafi nú hætt starfsemi kunna að vera til staðar ýmis verðmæti í félaginu sem nýst geta á íslenskum flugmarkaði í kjölfarið. Er um að ræða m.a. vörumerki, samninga við starfsfólk, samninga um leigu flugvéla og ýmis konar leyfi sem eftir atvikum er unnt að viðhalda í tiltekinn tíma. Í þessu samhengi skipta afgreiðslutímar á flugvöllum töluverðu máli, en um er að ræða takmörkuð gæði sem flugrekstraraðilar halda á, sbr. framangreint. Þannig er í reglum EES-réttar um afgreiðslutíma, sem gilda m.a. á Íslandi, gert ráð fyrir því að unnt sé, að vissum skilyrðum uppfylltum, að veita félagi sem hættir rekstri og jafnvel fer í þrotameðferð heimild til þess að halda eftir tilteknum réttindum á meðan leitað er leiða til þess að selja eignir til nýrra aðila og bjarga með því verðmætum. Líta má til erlendra fordæma í þessu sambandi.

Fram hefur komið að WOW air skilaði í dag inn flugrekstrarleyfi sínu til Samgöngustofu. Úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum er tengd flugrekstrarleyfi viðkomandi flugfélags. Afar mikilvægt er að stjórnvöld hugi að því að flugrekstrarleyfið eða réttindi því tengd haldi gildi sínu að einhverju leyti og grípi e.a. til annarra ráðstafana til þess að stuðla að því að þrotabú félagsins geti nýtt sér þær eignir sem felast í afgreiðslutímum á flugvöllum og þar með að eignirnar nýtist hugsanlega til þess að viðhalda samkeppni á flugmarkaði.  

Viðskipti með eignir geta falið í sér samruna

Í framkvæmd samkeppnislaga bæði hér á landi og í EES/ESB-samkeppnisrétti hefur verið litið svo á að kaup á eignum af þrotabúum geti falið í sér samruna í skilningi samkeppnisréttarins. Fordæmi erlendis sýna að reynt er að tryggja að viðskipti þrotabúa með eignir fallinna flugfélaga raski ekki samkeppni.

Mikilvægt er að m.a. skiptastjórar hafi hliðsjón af því að samkeppnislög geta tekið til ráðstafana þeirra og þeir reyni eftir því sem unnt er að hafa hliðsjón af samkeppnissjónarmiðum.

Tilmæli Samkeppniseftirlitsins

Í ljósi alls framangreinds beinir Samkeppniseftirlitið því til viðkomandi stjórnvalda og þeirra aðila sem munu halda á viðkomandi eignum WOW air í framhaldinu að hugað sé að samkeppnislegum áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar verða um úrlausn málsins. Þar á meðal er mælst til eftirfarandi:

  • Að þeir sem koma að úrlausn málsins geri það sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja að eignir hverfi ekki af markaðnum, en þess í stað sé gripið til mögulegra ráðstafana sem stuðla að því að samkeppni á íslenskum flugmarkaði sé viðhaldið, eftir því sem framast er unnt.
  • Að flugmálayfirvöld, þ.m.t. samræmingarstjórar á flugvöllum, liðki fyrir því eftir því sem framast er kostur að eignir flugfélaga, óefnislegar sem og efnislegar, sem hætta starfsemi geti nýst nýjum aðilum í rekstri. Er þetta ekki síst mikilvægt á Íslandi sem eðli máls samkvæmt er landfræðilega afmarkaður markaður og hagkerfið byggir að töluverðu leyti á ferðamannaiðnaði.
  • Að skiptastjórar geri allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja það að eignir hverfi ekki af markaðnum og þar með að samkeppni á íslenskum flugmarkaði sé viðhaldið eftir því sem framast er unnt.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK