Skiptastjórar skipaðir í dag

mbl.is/​Hari

Allt stefnir í að WOW air verði gefið upp til gjaldþrotaskipta í dag. Heimildir mbl.is herma að undirbúningur sé hafinn að því ferli sem við tekur á vettvangi Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómari mun skipa skiptastjóra yfir búið. Heimildir mbl.is herma að vegna umfangs gjaldþrotsins verði að minnsta kosti tveir skiptastjórar skipaðir yfir búið.

Þótt ekki verði endanlega ákveðið hverjir taka við búinu fyrr en formleg gjaldþrotaskiptabeiðni verður lögð fyrir dóminn standa líkur til þess að hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson verði skipaðir yfir búið. Heimildir mbl.is herma að fulltrúar Héraðsdóms Reykjavíkur hafi sett sig í samband við þá tvo og kannað hvort þeir séu reiðubúnir að taka að sér verkið. Viðbrögð þeirra við málaleitan dómsins munu hafa verið jákvæð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK