Grípa til ráðstafana vegna hópuppsagnar

Gripið hefur verið til ráðstafana á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík …
Gripið hefur verið til ráðstafana á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík vegna hópuppsagnar Airport Associates. mbl.is/​Hari

„Við vissum að þetta stóð til, en við vissum ekki hversu mörgum yrði sagt upp. Þetta er það fyrirtæki sem hefur þjónustað WOW uppi á velli langmest þannig að það blasti við að ef að WOW færi illa þá myndi Airport Associates þurfa að grípa til þessa ráðs,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar (VMST), í samtali við mbl.is.

Fyr­ir­tækið Airport Associa­tes sem veit­ir flugaf­greiðsluþjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli og sem m.a. þjón­ustaði WOW air til­kynnti nú síðdeg­is að fyr­ir­tækið hafi ákveðið að segja upp 315 manns í kjöl­far gjaldþrots WOW air. Í tilkynningu frá félaginu segir hins vegar að til standi að end­ur­ráða tölu­verðan fjölda.

Hópuppsögnin er sú stærsta í kjölfar gjaldþrots WOW air í gær en Unnur hefur óskað eftir samantekt um fjölda uppsagna síðasta sólarhringinn og mun hún liggja fyrir síðar í dag. Unnur á hins vegar ekki von á annarri stórri hópuppsögn í líkingu við Airport Associates.

Ljóst er að mikið álag verður á starfsmönnum Vinnumálastofnunnar næstu vikur og jafnvel mánuði og ákvað fé­lags­málaráðuneytið í morg­un að veita Vinnu­mála­stofn­un 80 millj­óna króna tíma­bundið fram­lag vegna falls WOW air.

Grípa til ráðstafana á þjónustuskrifstofu VMST í Keflavík

Gripið hefur verið til ráðstafana á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík vegna uppsagnanna. „Við munum fjölga starfsfólki sem mun aðstoða fólk við að sækja um atvinnuleysisbætur og leita sér að starfi og útskýra réttindi og hjálpa fólki að sækja þau,“ segir Unnur.

Hún bendir á að eðli uppsagnanna hjá Airport Associates sé annað þar sem fyrirtækið er ekki gjaldþrota líkt og WOW air. „Hjá WOW varð fólk atvinnulaust á þeirri stundu en þarna er fólk með sinn uppsagnafrest, þannig að þjónustan við það fólk dreifist betur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK