Elísabet Austmann ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs ORF Líftækni

Elísabet Austmann.
Elísabet Austmann. Ljósmynd/Aðsend

ORF Líftækni hefur ráðið Elísabetu Austmann til starfa sem framkvæmdastjóra markaðssviðs.

Auk þess að leiða markaðsmál fyrirtækisins og vörumerkjauppbyggingu á húðvörulínunni BIOEFFECT mun Elísabet sitja í vöruþróunarráði félagsins, að því er segir í tilkynningu.

Elísabet hefur yfir fimmtán ára reynslu af markaðsmálum og vörumerkjastýringu þar af tólf við að markaðssetja íslenskar vörur eða þjónustu á erlendum mörkuðum.  Síðustu átta ár hefur hún starfað hjá Marel, fyrst sem sýningarstjóri, svo þróunarstjóri hjá Marel í Kaupmannahöfn þar sem hún sá um uppbyggingu og innleiðingu á sýningar- og þjálfunarhúsnæði fyrirtækisins. Árið 2016 tók hún við sem forstöðumaður á alþjóðlegu markaðssviði og bar ábyrgð á vörumerkinu Marel og framleiðslu á markaðsefni fyrir fyrirtækið á alþjóðavísu. Að auki bar hún ábyrgð á endurmörkunarverkefni fyrirtækisins sem unnið er eftir í dag.

Elísabet er alþjóðamarkaðsfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, hún hóf störf í byrjun apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK