Hótel Skaftafell sér um veitingasölu í Vatnajökulsþjóðgarði

Hótel Skaftafell mun sjá um rekstur veitingasölu í Vatnajökulsþjóðgarði í …
Hótel Skaftafell mun sjá um rekstur veitingasölu í Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli næsta árið. Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili hefji starfsemi í maí. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vatnajökulsþjóðgarður hefur skrifað undir samning við eigendur Hótels Skaftafells um að þau taki að sér rekstur veitingasölu í Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli til eins árs. Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili hefji starfsemi í maí.

Í tilkynningu frá þjóðgarðinum segir að gestum í Skaftafelli hafi fjölgað mikið síðustu árin. „Yfir vetrarmánuðina eru þeir oft um þúsund á dag, sú tala margfaldast á sumrin. Það er augljós staðreynd að fyrir slíkan gestafjölda þarf að vera hægt að uppfylla grunnþarfir varðandi mat og ýmsa þjónustu.“

Í haust ályktaði stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráð suðursvæðis um að þörf væri fyrir veitingarekstur í Skaftafelli en að sá rekstur væri ekki hluti af kjarnastarfsemi þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn auglýsti eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér reksturinn og áhersla var lögð á að starfsemin myndi styðja við markmið þjóðgarðsins og lúta skilyrðum sem nánar voru útlistuð til þeirra sem óskuðu eftir gögnum.

Enginn þeirra sem óskuðu eftir gögnum sendi inn tilboð, en áhugi var til staðar þó enginn treysti sér til að uppfylla öll viðmiðin sem sett höfðu verið. Eins var skortur á starfsmannahúsnæði mikil hindrun. Farið var í viðræður og á föstudag náðust samningar sem báðir aðilar gátu fallist á, að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK