Tekur við starfsemi Húsastoðar

Friðgeir Sigurðsson, forstjóri PwC á Íslandi, Sigurveig Friðgeirsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri …
Friðgeir Sigurðsson, forstjóri PwC á Íslandi, Sigurveig Friðgeirsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Húsastoðar, og Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Ljósmynd/Aðsend

Samkomulag hefur náðst milli PricewaterhouseCoopers ehf. og Eignaumsjónar hf. um að Eignaumsjón taki við allri starfsemi Húsastoðar ehf., dótturfélags PwC og annist alla þjónustu við viðskiptavini Húsastoðar, í samræmi við gildandi þjónustusamninga.

Til lengri tíma litið er stefnt að sameiningu félaganna, að því er kemur fram í tilkynningu.

Engar efnislegar breytingar verða á samningum þeirra hús- og rekstrarfélaga sem eru í þjónustu hjá Húsastoð þegar Eignaumsjón tekur formlega við rekstri félagsins frá deginum í dag. Sömu samningar eru áfram í gildi. Jafnframt verður starfsfólk Húsastoðar, sem starfar áfram  hjá PwC, bæði viðskiptavinum Húsastoðar og starfsfólki Eignaumsjónar innan handar næstu vikurnar á meðan gengið er frá formsatriðum.

„Það fellur ekki að kjarnastarfsemi PwC að eiga og reka húsfélagaþjónustu. Mikil þróun hefur átt sér stað á þessum markaði og meiri þörf er orðin fyrir sérhæfðari þjónustu sem stærri þjónustuaðili á betra með að veita, enda rekstur hús- og rekstrarfélaga alltaf að verða flóknari og umfangsmeiri. Við teljum það góða lausn að Eignaumsjón taki við keflinu, enda lögðum við upp með að öflugur aðili á þessum markaði taki við til að tryggja að vel verði hugsað um viðskiptavini Húsastoðar og hagsmuni,“ segir Sigurveig Friðgeirsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Húsastoðar, í tilkynningunni. 

„Við hlökkum til að takast á við þá áskorun að taka við rekstri Húsastoðar og erum þess fullviss að vel muni takast til, enda hefur Eignaumsjón verið leiðandi í þessari þjónustu allt frá því að félagið tók til starfa árið 2001. Með tilkomu Húsastoðar sjáum við nú um hátt í 500 hús- og rekstrarfélög með nærri 12 þúsund íbúðum eða einingum. Áhersla okkar til framtíðar er að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með góðri þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK