Vilja rifta 550 milljóna greiðslu

Fjárfestar sem tóku þátt í skuldabréfaútboði WOW air eru sagðir …
Fjárfestar sem tóku þátt í skuldabréfaútboði WOW air eru sagðir ósáttir við samkomulag Arion banka við félagið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skiptastjórar þrotabús WOW air skoða nú hvort tilefni sé til þess að rifta samkomulagi sem Arion banki og WOW gerðu með sér í fyrra þar sem ákveðið var að breyta fimm milljóna dollara yfirdráttarláni í skuldabréf að sömu fjárhæð í flugfélaginu.

Það var gert við skuldabréfaútboð WOW air síðasta haust, en Markaðurinn greinir frá þessu í dag. Um er að ræða 550 milljóna króna skuld á þáverandi gengi. Skiptastjórarnir skoða nú hvort tilefni sé til að rifta þessu samkomulagi, en ráðgjafafyrirtækið Deloitte aðstoðar þrotabúið og á enn eftir að leggja mat á það hvort grundvöllur sé fyrir riftun.

Með þessu samkomulagi lagði Arion banki félaginu ekki til nýtt fjármagn í skuldabréfaútboðinu, en breytingin á yfirdráttarláni í skuldabréf nam nærri tíu prósentum af heildarstærð útboðsins. Þá er talið að innan við helmingur af þeim 50 milljónum evra sem söfnuðust í útboðinu hafi verið nýtt fjármagn.

Í frétt Markaðarins segir að margir fjárfestar sem komu með nýtt fjármagn inn í félagið í skuldabréfaútboðinu séu ósáttir við ráðstöfun Arion banka og WOW air. Þeir hefðu líklega ekki komið inn með nýtt fjármagn ef þeir vissu að hluti útboðsins var afgreiddur með þeim hætti að breyta yfirdráttarláni í skuldabréf.

Skuldabréfaeigendur eru sagðir vilja láta reyna á ábyrgðartryggingar stjórnenda WOW air vegna mögulegrar persónulegrar ábyrgðar þeirra í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK