Íslandsbanki hagnaðist um 2,6 milljarða

Hagnaður Íslandsbanka nam 2,6 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum …
Hagnaður Íslandsbanka nam 2,6 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Íslandsbanki hagnaðist um 2,6 milljarða króna, eftir skatta, á fyrsta fjórðungi ársins 2019 og er hagnaðurinn um 500 milljónum meiri en hann var á fyrsta fjórðungi ársins 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallar.

Arðsemi eigin fjár bankans var 5,9% á ársgrundvelli og hreinar vaxtatekjur voru 8,2 milljarðar króna, sem er 5,3% hækkun frá fyrsta fjórðungi síðasta árs.

Hreinar þóknanatekjur bankans á fyrstu þremur mánuðum ársins námu 3,2 milljörðum króna, sem er 15,8% hækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2018, er þóknanatekjur námu 2,8 milljörðum.

Stjórnunarkostnaður jókst um rúm 3,5% á milli ára og nam 7,1 milljarði króna.

„Kostnaðarhlutfall samstæðu á tímabilinu var 62,6% samanborið við 69,8% á sama tímabili í fyrra, á meðan kostnaðarhlutfall móðurfélags var 58,1% sem er lítillega yfir 55% langtímamarkmiði bankans,“ segir í tilkynningu bankans.

Þá segir að lausafjárstaða bankans sé sterk, bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og vel umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið.

Birna ánægð með stöðuna

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir stöðu bankans afar trausta, í ágripi, sem lesa má í heild sinni hér að neðan:

„Fyrsti ársfjórðungur einkenndist af áframhaldandi kröftugum útlánavexti og myndarlegri aukningu í vaxta- og þóknanatekjum og nam hagnaður bankans 2,6 ma. kr. sem er í takti við áætlanir.

Staða bankans er afar traust, lausafjárhlutföll í erlendum og innlendum gjaldmiðlum yfir innri mörkum og kröfum eftirlitsaðila og eiginfjárhlutföll í takt við langtímamarkmið. Lánasafnið er sterkt og koma gæði þess vel út í alþjóðlegum samanburði.

Það gladdi mig hversu vel síðasta skuldabréfaboð bankans upp á 300 milljónir evra gekk á erlendum mörkuðum og það er ljóst að bankinn og íslenskt efnahagslíf njóta áframhaldandi trausts erlendra fjárfesta.

Íslandsbanki hélt áfram að kynna nýjar stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini sína í byrjun árs 2019. Sem dæmi hafa lausnirnar „Lán í appi“ og „Velkomin í viðskipti“ hlotið frábærar viðtökur viðskiptavina og er bankinn rétt að byrja á þessari vegferð.

Ný skýrsla bankans um ferðaþjónustu var kynnt í síðustu viku og hefur hún hlotið mikla athygli enda er ljóst að þjóðfélagið á mikið undir að vel takist til með þessa mikilvægu atvinnugrein.

Ný stefna bankans var kynnt fyrir starfsfólki í lok mars og var hún unnin með alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Boston Consulting Group. Ég er sannfærð um að ný stefna muni gera bankann enn betur í stakk búinn til að takast á við breyttan bankaheim og munum við leggja áherslu á innleiðingu hennar á næstunni.

Framhaldið er spennandi fyrir okkur í Íslandsbanka þar sem við ætlum okkur að vera hreyfiafl til góðra verka og hafa jákvæð og uppbyggileg samfélagsáhrif en jafnframt halda áfram að veita viðskiptavinum okkar bestu bankaþjónustu á Íslandi.“

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK