Ístak dregur flestar uppsagnir til baka

Hús íslenskunnar.
Hús íslenskunnar. Mynd/Hornsteinar arkitekta

Verktakafyrirtækið Ístak tilkynnti í lok febrúar sl. að það hefði sagt upp alls 56 starfsmönnum. Nú hefur Ístak fengið tvö stór verkefni á skömmum tíma og því hefur fyrirtækið að stærstum hluta dregið þessar uppsagnir til baka.

Þetta staðfestir Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks. Í byrjun maí skrifuðu Vegagerðin og Ístak undir samning um tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði. Samningsupphæðin var rúmir 2 milljarðar króna.

Þá tilkynnti menntamálaráðuneytið í þessari viku þá ákvörðun að ganga að tilboði Ístaks um byggingu Húss íslenskunnar. Hljóðaði tilboð Ístaks upp á 4,5 milljarða króna, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK