Frá Wow til Kynnisferða

Linda Hrönn Björgvinsdóttir og Sandra Ósk Sigurðardóttir fyrir utan höfuðstöðvar …
Linda Hrönn Björgvinsdóttir og Sandra Ósk Sigurðardóttir fyrir utan höfuðstöðvar Kynnisferða. Ljósmynd/Aðsend

Linda Hrönn Björgvinsdóttir og Sandra Ósk Sigurðardóttir hafa verið ráðnar til Kynnisferða. Linda hefur verið ráðin sem markaðsstjóri Kynnisferða og Sandra Ósk hefur verið ráðin til að stjórna vefþróun og stafrænum lausnum.

Fram kemur í tilkynningu, að ráðningar þeirra séu hluti af áherslubreytingum innan Kynnisferða sem hófust í haust með ráðningu Engilberts Hafsteinssonar yfir sölu- og markaðssvið fyrirtækisins en með þeirri ráðningu var stigið fyrsta skrefið í áherslu Kynnisferða á stafræna framtíð.

Linda starfaði undanfarin fjögur ár sem svæðisstjóri sölu- og markaðsmála hjá WOW air. Á þeim tíma bar hún ábyrgð á mismunandi markaðssvæðum í Evrópu m.a. Bretlandi, Írlandi, Þýskalandi og Hollandi. Linda tók þátt í stefnumótun og þróun stafrænna auglýsingalausa fyrir WOW air.

Þar á undan starfaði Linda í Kaupmannahöfn við markaðssetningu á netinu, viðskiptaþróun og viðburðastjórnun. Linda lauk meistaranámi í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og BS í ferðamálafræði með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands.

Sandra starfaði sem vefstjóri hjá WOW air undanfarin fimm ár. Hún bar ábyrgð á vefsíðum, bókunarvélum og appi félagsins á öllum tungumálum og mörkuðum. Hún tók virkan þátt í stefnumótun og þróun á veflausnum WOW air. Hún starfaði þar áður sem vefstjóri hjá Primera Air og Mortgage Bankers Association í Washington og sem rekstrarstjóri hjá Pilgrim í Washington. Sandra er með BS í viðskiptafræði frá Háskólanum í Lousiana, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK