Þrír nýir stjórnendur hjá Orku náttúrunnar

Hildigunnur Jónsdóttir er nýr forstöðumaður tækniþróunar, Guðrún Einarsdóttir nýr forstöðumaður …
Hildigunnur Jónsdóttir er nýr forstöðumaður tækniþróunar, Guðrún Einarsdóttir nýr forstöðumaður einstaklingsmarkaða og Kristján Már Atlason nýr forstöðumaður fyrirtækjamarkaða hjá Orku náttúrunnar. Ljósmynd/Aðsend

Hildigunnur Jónsdóttir, Guðrún Einarsdóttir og Kristján Már Atlason hafa verið ráðin í stjórnendateymi Orku náttúrunnar (ON) og munu þau taka þátt í að þróa „eitt stærsta orkufyrirtæki landsins í takti við síbreytilegar þarfir og áskoranir,“ að því er fram kemur í tilkynningu.

ON hefur verið leiðandi í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla allt frá stofnun fyrirtækisins, árið 2014. Hildigunnur Jónsdóttir verður forstöðumaður tækniþróunar hjá ON. Hildigunnur gekk til liðs við ON fyrir rúmu ári sem verkefnisstjóri. Hún hafði þá sjö ára reynslu sem slíkur hjá danska orkufyrirtækinu Örsted þar sem hún vann að vindorku-verkefnum víða um heim. Hildigunnur er með M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Columbia University í New York, diplómu í stjórnun (EBA) frá DTU í Danmörku og B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands.

Guðrún Einarsdóttir tekur við stöðu forstöðumanns einstaklingsmarkaða. Guðrún réði sig til fjarskipta-fyrirtækisins Nova við stofnun þess og gegndi ýmsum stjórnunarstörfum á uppvaxtarárum þess, 2007-2013. Þá gerðist hún starfsmannastjóri hjá WOW en fór aftur til Nova 2014 þar sem hún stýrði verkefna- og vörustjórnun þar til fyrr á þessu ári. Guðrún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Kristján Már Atlason tekur við stöðu forstöðumanns fyrirtækjamarkaða. Kristján Már hefur áratuga reynslu af sölu- og markaðsmálum á fyrirtækjamarkaði. Hann starfaði hjá Olís þar sem hann var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs félagsins frá árinu 2014. Þar áður starfaði Kristján hjá Samskipum í um 15 ár sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála, hvorttveggja í Reykjavík og Rotterdam. Kristján er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá sama skóla.  

„Við bindum miklar vonir við nýja stjórnendur sem bætast nú við öflugt teymi okkar hjá ON og sem fyrr tökumst við einbeitt á við þessi verkefni,“ er haft eftir Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra ON, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK