Pipar\TBWA hlaut tilnefningu í Cannes

Selma Rut Þorsteinsdóttir er hönnunarstjóri á Pipar\TBWA
Selma Rut Þorsteinsdóttir er hönnunarstjóri á Pipar\TBWA

Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur hlotið tilnefningu til Ljónsins í Cannes fyrir He for She-herferð UN Women; „Kynbundið ofbeldi er nær en þú heldur“. Herferðin er tilnefnd til Glerljónsins (e. Glass Lion) og er Pipar\TBWA fyrsta íslenska auglýsingastofan til þess að hljóta tilnefningu til þeirra verðlauna.

Glerljónið er samkvæmt lýsingu hátíðarinnar sá flokkur almannaheillaauglýsinga sem ætlað er að „breyta heiminum“ með jákvæðum áhrifum á málefni eins og t.d. inngróna kynjamismunun, ójafnvægi eða óréttlæti.

Hátíðin í Cannes fer fram dagana 14.-21. júní og er stærsta og virtasta auglýsingahátíð í heimi.

Nú þegar hefur He for She-herferð UN Women fengið tvenn verðlaun á Íslandi; sem almannaheillaauglýsing á Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum, og herferð ársins hjá Félagi íslenskra teiknara (FÍT).

Voru með eitthvað sérstakt í höndunum

„Það var sérstaklega ánægjulegt að fá tilnefningu fyrir þessa herferð. Málefnið skiptir okkur öll gríðarlega miklu máli og við nálguðumst það af eins mikilli virðingu og mögulegt var, en náðum samt þessum slagkrafti,“ segir Selma Rut Þorsteinsdóttir, hönnunarstjóri á Pipar/TBWA.

„Samstarfið við UN Women var frábært en allt ferlið við gerð auglýsingarinnar var unnið í nánu samstarfi og þær treystu okkur hundrað prósent fyrir þessari hugmynd, sem gat verið brothætt. Þegar við vorum að vinna herferðina þá vissum við strax að við værum með eitthvað sérstakt í höndunum sem myndi hreyfa við fólki.“ segir Selma.

Vakti upp sönn og áhrifarík viðbrögð karlmanna

„Við erum bæði meyr í hjartanu og að springa úr stolti. Nú þurfum við bara að fara til Cannes og standa fyrir máli okkar frammi fyrir lokadómnefndinni,“ segir Selma Rut Þorsteinsdóttir, hönnunarstjóri á Pipar\TBWA sem mun ásamt Birni Jónssyni, hugmyndastjóra stofunnar úr teyminu, þurfa að fara til Cannes og halda kynningu og sitja fyrir spurningum dómnefndar.

Herferð Pipars\TBWA og UN Women vakti strax gríðarlega athygli og sterk viðbrögð hér á landi þegar hún var sett í loftið í september 2018 . Eins og sjá má í myndskeiði úr herferðinni hér að ofan les hópur karlmanna, þekktra sem óþekktra, upp sannar frásagnir kvenna af kynbundnu ofbeldi frá ýmsum heimshornum. Þeir komast svo að því, í miðjum lestri, að þolandinn í einni frásögninni, situr á móti þeim. Það vakti upp sönn og áhrifarík viðbrögð karlmannanna. Sú hugrakka kona, Sigrún Sif Jóelsdóttir, var upphaflega nafnlaus en steig síðar fram í fjölmiðlum.

Aðeins hafa 4 tilnefningar í sögunni runnið íslenskum auglýsingastofum í skaut og aldrei áður hefur íslensk auglýsingastofa verið tilnefnd til glerljónsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK