Stígur til hliðar sem forstjóri Skeljungs

Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs
Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs mbl.is/​Hari

Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs, afhenti í gær stjórn félagsins uppsagnarbréf sitt sem forstjóri félagsins. Hendrik hefur verið forstjóri bæði Skeljungs og dótturfélagsins Magn í Færeyjum undanfarin tvö ár. Meðan leitað verður að nýjum forstjóra mun hann áfram gegna stöðu forstjóra Skeljungs, en í framhaldinu verður hann aftur forstjóri Magn.

Hendrik hefur starfað fyrir félagið í 12 ár, þar af fyrst sem forstjóri Magn í 10 ár og svo fyrir sameiginlegt félag síðustu tvö árin. Í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær er haft eftir honum að lokið sé við nokkur stærri verkefnum félagsins sem hann hafi sett af stað þegar hann tók við fyrir tveimur árum. Hann telji því rétt, með hliðsjón af nýrri eigendasamsetningu og stjórn, að stíga til hliðar og halda áfram vinnunni sem forstjóri Magn.

365 miðlar, fé­lag Ingi­bjarg­ar Pálma­dótt­ur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, keypti í apríl stór­an hlut í Skelj­ungi og bætti svo við sig síðar í mánuðinum. Í fram­hald­inu fór fé­lagið fram á nýj­an hlut­hafa­fund, en árs­fund­ur fé­lags­ins var hald­inn í mars og var þá ný stjórn kos­in. Í lok maí var ný stjórn kosin, en hana skipa Ata Maria Bær­entsen, Birna Ósk Ein­ars­dótt­ir, Jens Mein­h­ard Rasmus­sen, Jón Ásgeir Jó­hann­es­son og Þór­ar­inn Arn­ar Sæv­ars­son. Jens var kjör­inn formaður og Jón Ásgeir vara­formaður.

365 miðlar eiga 4,32% hlutabréfa í félaginu, auk þess sem gerðir voru framvirkir samningar um kaup á 5,69% í fé­lag­inu til viðbót­ar. Er því sam­tals um að ræða 10,01% í Skelj­ungi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK