84% íbúðaviðskipta undir ásettu verði

Áfram virðist mikil spurn eftir minni íbúðum.
Áfram virðist mikil spurn eftir minni íbúðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Um 84% allra íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í apríl voru undir ásettu verði en um 10% seldust á hærra verði en á þær var sett. Þetta er nokkur breyting frá því sem var fyrir ári þegar annars vegar 69% seldust undir ásettu verði og hins vegar 17% seldust á yfirverði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Áfram virðist mikil spurn eftir minni íbúðum. Það sem af er ári hafa 24% viðskipta með eins eða tveggja herbergja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verið yfir ásettu verði, samanborið við aðeins 7% viðskipta með íbúðir sem eru fimm herbergja eða stærri.

Minni íbúðir hafa ríflega tvöfaldast í verði á undanförnum áratug á meðan verð stærri eigna hefur hækkað um rúm 70%.

Frábrugðinn húsnæðismarkaður á Vestfjörðum

Húsnæðismarkaðurinn á Vestfjörðum er nokkuð frábrugðinn því sem þekkist annars staðar á landinu. Meðalaldur íbúða þar er hærri auk þess sem hlutfall einbýlishúsa er hátt. Viðskipti með íbúðir á svæðinu hafa tekið vel við sér að undanförnu eftir að hafa verið í dálítilli lægð og var árleg velta fasteigna hærri þar en á sambærilegum svæðum. Talsverð hækkun hefur einnig orðið á söluverði eigna á Vestfjörðum, að því er segir í tilkynningunni.  

Samkvæmt nýrri könnun Íbúðalánasjóðs og rannsóknafyrirtækisins Zenter telja 88% leigjenda líklegt að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir hálft ár en aðeins um 9% telja að þeir verði komnir af leigumarkaði. 16% þeirra sem búa enn í foreldrahúsum telja líklegt að þeir færi sig yfir á leigumarkað á næstu 6 mánuðum en í hópi húsnæðiseigenda er hlutfallið einungis 2%.

Frá því að Seðlabanki Íslands tilkynnti vaxtalækkun um 0,5 prósentustig í lok síðasta mánaðar hafa flestir þeir sem bjóða upp á óverðtryggð fasteignalán lækkað vaxtakjör sín, allt frá 0,15 til 0,7 prósentustigum. Dæmi voru um að lækkanirnar hafi verið komnar fram einni til tveimur vikum fyrir tilkynningu Seðlabankans um vaxtalækkun en margir markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um lækkun.   

Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um stofnframlög ríkisins til almennra leiguíbúða en nú og er heildarfjárhæð stofnframlaga ríkisins sem sótt er um rúmir 6 milljarðar króna. Sótt er um stofnframlög vegna 915 íbúða, þar af til byggingar á 619 íbúðum og kaupum á 296 íbúðum sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni leigjendum, svo sem námsmönnum, öldruðum, fötluðum og skjólstæðingum félagsþjónustu sveitarfélaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK