Spá lækkun stýrivaxta

Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands verður birt 26. júní. Á …
Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands verður birt 26. júní. Á myndinni sést Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/​Hari

Hagfræðideild Landsbankans telur líklegra að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti fremur en að halda þeim óbreyttum á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt 26. júní.

Nefndin lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í maí síðastliðnum en bankinn telur að það hafi verið fyrsta skrefið í vaxtalækkunarferli sem muni standa yfir næstu misseri, að því er fram kemur í Hagsjá bankans.

„Við gerum ráð fyrir að nefndin eigi eftir að lækka vexti alls um 1 prósentustig til viðbótar og muni þær lækkanir verða teknar í skrefum á næstu misserum. Við teljum að það sem helst muni hafa áhrif á ákvörðunina nú sé annars vegar veiking krónunnar, sem dregur heldur úr líkum á vaxtalækkun, og hins vegar lækkun verðbólguvæntinga fyrirtækja, sem styður við að næsta skref í lækkun vaxta verði tekið. Þessir tveir þættir munu vegast á en við teljum að lækkun verðbólguvæntinga í átt að markmiði muni vega þyngra. Líklegt má telja að nefndinni sé mjög umhugað um að hvorki dýpka né lengja fyrirséðan samdrátt í hagkerfinu með því að draga ekki nægilega mikið úr aðhaldi peningastefnunnar, að því gefnu að langtímaverðbólguvæntingar haldist nálægt markmiði. Það mun einnig lita ákvörðunina nú.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK