Spáir 25 punkta stýrivaxtalækkun

Íslandsbanki. Greining bankans segir að efnahagshorfur hafi dökknað umfram þá …
Íslandsbanki. Greining bankans segir að efnahagshorfur hafi dökknað umfram þá sviðsmynd sem dregin var upp í grunnspá Seðlabanka Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Greining Íslandsbanka spáir 25 punkta lækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans þann 26. júní. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða samkvæmt því 3,75% og hafa meginvextir Seðlabankans þá ekki verið lægri frá þriðja ársfjórðungi 2011.

Þá segir greining bankans, að frá síðustu vaxtaákvörðun hafi efnahagshorfur „að okkar mati dökknað umfram þá sviðsmynd sem dregin var upp í grunnspá Seðlabankans. Því er útlit fyrir að hagkerfið verði komið í nokkurn framleiðsluslaka áður en árið er úti og að það gæti orðið lengur að rétta úr kútnum en Seðlabankinn spáði í maí. Yfirlýsing og ummæli peningastefnunefndarmanna gefa einnig sterklega í skyn að þau séu tilbúin að lækka vexti frekar til að bregðast við ágjöf á efnahagslífið og væntanlega ekki eftir neinu að bíða þar sem nýlegar hagtölur samræmast framangreindum forsendum um skaplegar verðbólguhorfur og -væntingar. Loks virðist trúverðugleiki peningastefnunnar enn halda allvel sjó ef marka má nýlega þróun langtíma verðbólguálags og -væntinga, sem minnkar þörfina fyrir aðhald að öðru jöfnu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK