Mótmæla aukinni skattheimtu

Gosdrykkir í hillu.
Gosdrykkir í hillu. mbl.is/Hjörtur

Samtök iðnaðarins mótmæla þeim tillögum Embættis landlæknis að auka skattheimtu á sykraða og ósykraða gosdrykki auk sælgætis til að draga úr sykurneyslu landsmanna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SI.

Þar segir að tillögurnar byggi á könnun sem gerð var á mataræði Íslendinga fyrir áratug. Ljóst sé að margt hafi breyst á þeim tíma sem liðinn er. Markaðshlutdeild sykraðra gosdrykkja hafi dregist stórlega saman á síðustu árum um leið og markaðshlutdeild sykraðra drykkja og vatns hafi aukist.

Þessi þróun er einungis hluti af miklum breytingum á lífsháttum og matarvenjum landsmanna. Neytendur hafa í miklum mæli snúið sér að hollari valkosti. Það er því löngu tímabært að kannað verði að nýju hvernig matarvenjum landsmanna er háttað,“ kemur fram í tilkynningunni.

SI telja að sérstök skattlagning einstakra vöruflokka feli í sér mismunun og skerði samkeppnisstöðu þeirra greinar sem í hlut á. Samtökin benda á að stjórnvöld hafi reynt bæði sérstaka skattheimtu af stökum vöruflokkum og almenna skattlagningu á sykri í matvælum til að stýra neyslu almennings. Hvorugt hafi skilað þeim árangri sem stefnt var að og einungis haft í för með sér kostnað og óhagræði sem komi niður á fyrirtækjum og almenningi.

Samtök iðnaðarins telja það fráleitt að taka aftur upp vörugjöld á matvæli með tilheyrandi kostnaði. Ekki aðeins hækkar það verð þeirra vara sem fyrir því verða heldur eykur það kostnað við kerfið sem slíkt sem á endanum kemur niður á samkeppnishæfni fyrirtækja og eykur kostnað neytenda og hins opinbera.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK