Þórhildur nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts

Þórhildur Ólöf Helgadóttir.
Þórhildur Ólöf Helgadóttir. Ljósmynd/Aðsend

Þórhildur Ólöf Helgadóttir hefur við ráðin til Íslandspósts og mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrirtækisins nú í lok sumars.

Fram kemur í tilkynningu, að Þórhildur hafi mjög mikla reynslu á sviði fjármála og rekstrar en síðastliðin tvö ár hafi hún starfað sem fjármálastjóri 66° Norður. Áður en hún tók við því starfi var hún fjármálastjóri bílaumboðsins Heklu frá 2014 til 2017 og þar á undan var hún fjármálastjóri Securitas en áður hafði hún starfað sem verkefnastjóri hjá Deloitte. Þá sat hún í stjórn Sjóvá Almennra um árabil sem og átti sæti í stjórnum dótturfélaga 66° Norður og Heklu. Þórhildur er með Cand Oecon próf frá Háskóla Íslands. Hún er gift Stefáni Árna Auðólfssyni og á þrjú börn.

Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts, segir í tilkynningunni, að í skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur Íslandspósts sé bent á að áætlunargerð gæti verið markvissari hjá fyrirtækinu og það hafi verið m.a. það sem fyrirtækið var að leita eftir hjá nýjum fjármálastjóra. Hann segir að Þórhildur sé gríðarlega öflug á því sviði og muni koma með nýjungar sem muni nýtast félaginu mjög vel við að ná utan um reksturinn.

„Það er því mjög spennandi að fá hana til liðs við okkur og er ég fullviss um að ráðningu hennar fylgi miklar og jákvæðar breytingar. Þau skref sem við höfum tekið með breytingum á stjórnendahópi félagsins nú í sumar hafa miðast að því að skapa öfluga liðsheild til að takast á við þessa stóru áskorun sem við stöndum frammi fyrir í að umbylta rekstri Íslandspósts. Í svona vegferð skiptir slagkraftur og samheldni liðsins öllu máli en við erum að einfalda skipulag og fækka framkvæmdastjórum og millistjórnendum til þess að færa ábyrgð og ákvarðanatöku nær sjálfri starfseminni. Á sama tíma hef ég, í nánu samstarfi við stjórn félagsins, lagt áherslu á hagræðingu og mikilvægi þess að aðlaga kostnaðargrunninn að þeim breytingum sem hafa orðið á umhverfi fyrirtækisins. Næstu skref í því verkefni verða stigin í síðar þessum mánuði en þá munum við kynna enn frekari breytingar sem snúa að hagræðingu og breyttu skipulagi. Ég vil einnig nota tækifærið og þakka fráfarandi framkvæmdastjóra fjármálasviðs, Helgu Sigríði Böðvarsdóttur, fyrir gott starf hjá fyrirtækinu og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.“ segir Birgir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK