Leigutekjur Reita 5,8 milljarðar

Reitir.
Reitir.

Rekstrarhagnaður Reita nam 3.868 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2019 og jókst hann um 3,7% frá fyrra ári.

Leigutekjur námu 5.805 milljónum króna og jukust þær um 4,1% frá sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reitum en stjórn fasteignafélagsins samþykkti árshlutareikninginn á fundi sínum í dag.

„Rekstur Reita gekk vel á fyrri helmingi ársins 2019 og var í meginatriðum í samræmi við væntingar stjórnenda. Í tilkynningu félagsins til markaðarins í febrúar sl., í tengslum við ársuppgjörið 2018, var sleginn varnagli við þróun leiguverða og bent á að fasteignafélag með atvinnuhúsnæði í öllum greinum atvinnulífsins væri á hverjum tíma spegilmynd viðhorfa og væntinga rekstraraðila,” segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í tilkynningunni.

„Að mati stjórnenda Reita er þörf á því nú að taka tillit til breyttra horfa í leigutekjum á seinni hluta ársins og að auka þurfi varúð vegna viðskiptakrafna með tilheyrandi áhrifum á rekstrarhagnað félagsins fyrir árið í heild,” segir hann.

„Á undanförnum mánuðum hafa Reitir unnið að endurnýjun fjölda fasteigna sinna, bæði fyrir nýja viðskiptavini og þá sem fylgt hafa félaginu til lengri tíma. Nokkur stór rými eru nú tímabundið athafnasvæði iðnaðarmanna. Stóru framkvæmdaverkefni lauk í júlí síðastliðnum þegar Reitir afhentu Landspítala vandlega endurnýjað um fimm þúsund fermetra skrifstofuhúsnæði í Skaftahlíð. Innan skamms hefjast framkvæmdir á Eiríksgötu 5, þar sem núverandi höfuðstöðvum spítalans verður breytt í göngudeild. Umtalsverðar framkvæmdir eiga sér stað á þriðju hæð í norðurenda Kringlunnar þar sem verið er að endurnýja tæplega þrjú þúsund fermetra atvinnurými auk þess sem nú er verið að gera upp hin sögufrægu hús Pósthússtræti 3 og 5 í miðborg Reykjavíkur,” bætir hann við.

Verið er að endurnýja atvinnuhúsnæði í Kringlunni.
Verið er að endurnýja atvinnuhúsnæði í Kringlunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK