Aton og Jónsson & Le’macks sameinast

Eigendur Aton.JL, frá vinstri: Agnar Tr. Lemacks, Ingvar Sverrisson, Viggó …
Eigendur Aton.JL, frá vinstri: Agnar Tr. Lemacks, Ingvar Sverrisson, Viggó Örn Jónsson og Huginn Freyr Þorsteinsson. Ljósmynd/Aðsend

Ráðgjafarfyrirtækið Aton og auglýsingastofan Jónsson & Le‘macks hafa nú sameinast undir nafninu Aton.JL. Í fréttatilkynningu frá hinu nýja fyrirtæki segir að með samrunanum verði til þekkingarfyrirtæki af nýrri tegund, „sérhæft samskiptafélag, sem veitir ráðgjöf á sviði samskipta og stefnumótunar”. 

„Nýja félagið gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar betur og á sama tíma mæta þörf sem við höfum orðið vör við á markaðnum,” er haft eftir Ingvari Sverrissyni framkvæmdastjóra Aton JL í tilkynningunni.

„Við lítum á sameininguna sem rökrétt og spennandi skref. Jónsson & Le‘macks hefur á síðustu misserum verið að þróast úr því að vera hefðbundin auglýsingastofa í að sinna ráðgjöf og skipulagðri upplýsingagjöf,” sagði Agnar Tr. Lemacks, stjórnarformaður Aton.JL:

Starfsmenn Aton.JL verða með sameiningunni 42 talsins, 30 í Reykjavík og 12 í Belgrad í Serbíu. Framkvæmdastjóri hins nýja félags verður Ingvar Sverrisson sem er jafnframt eigandi ásamt Agnari Tr. Lemacks, stjórnarformanni, Dr. Hugin Frey Þorsteinssyni, ráðgjafa og Viggó Erni Jónssyni, ráðgjafa.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK