Aukinn þjónustuafgangur þrátt fyrir fækkun ferðamanna

Erlendum ferðamönnum fækkaði um 19,2% á öðrum fjórðungi borið saman …
Erlendum ferðamönnum fækkaði um 19,2% á öðrum fjórðungi borið saman við sama fjórðung í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrátt fyrir verulegan samdrátt í komum erlendra ferðamanna á öðrum ársfjórðungi varð lítils háttar aukning í þjónustujöfnuði. Þróunina má meðal annars rekja til þess að ferðalög Íslendinga erlendis drógust einnig saman, að því er fram kemur í nýrri hagsjá Landsbankans. 

Þjónustuútflutningur á öðrum fjórðungi ársins nam 116,1 milljarða króna og dróst hann saman um rúma 3,6 milljarða króna, eða 2,1%, á milli ára. Þjónustuinnflutningur nam hins vegar tæpum 114 milljörðum króna og dróst hann saman um 4,3 milljarða króna, eða 3,6%, á milli ára. 

Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 52,1 milljarð króna og sem er um 700 milljörðum króna eða 1,4% meiri afgangur en á sama tíma í fyrra. Meiri afgangur nú skýrist af því að þjónustuinnflutningur dróst meira saman að krónutölu en þjónustuútflutningur. Að undanskildu síðasta ári er þetta minnsti afgangur af þjónustuviðskiptum á öðrum ársfjórðungi síðan árið 2014, en þá nam hann 32,3 milljörðum króna. 

Samdráttur í ferðaþjónustu

Erlendum ferðamönnum fækkaði um 19,2% á öðrum fjórðungi borið saman við sama fjórðung í fyrra. Þetta er fyrsti ársfjórðungurinn þar sem Wow air nýtur ekki við en félagið fór í þrot í lok mars. Fækkun ferðamanna á öðrum ársfjórðungi var töluvert meiri en fækkunin á fyrsta fjórðungi en þá nam hún 4,7% en þetta eru fyrstu tveir fjórðungar sem ferðamönnum fækkar milli ára síðan á þriðja fjórðungi 2010. 

Brottförum Íslendinga fækkar 

Langumsvifamesti innflutningur til landsins í formi þjónustu eru ferðalög Íslendinga erlendis. Þessi liður var 43% af heildarinnflutningi þjónustu á síðasta ári og hafði farið hækkandi árin þar á undan, en hlutfallið var t.d. 31% árið 2014.

Ferðalög Íslendinga hafa aukist verulega á síðustu árum samfara auknum uppgangi hér á landi, lægra flugmiðaverði og styrkingu krónunnar sem hefur aukið kaupmátt Íslendinga erlendis. Ákveðin breyting varð á þessu á fyrsta fjórðungi þegar brottförum Íslendinga fækkaði um 8,5% miðað við  sama tímabil í árið áður. Það var í fyrsta skiptið síðan á fyrsta ársfjórðungi 2014 sem brottfarir dragast saman.

Fækkunin nú á öðrum ársfjórðungi nam 2,2%. Þessi fækkun brottfara hefur leitt til þess að vöxtur í innflutningi ferðalaga hefur minnkað í samanburði við vöxt síðustu missera. Vöxturinn í innflutningi ferðalaga nam 8,1% en sé vöxturinn settur á fast gengi krónu var hann neikvæður um 4,4%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK