Selur 600 heita potta á ári

Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar …
Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar að lengd. Kristján Berg Ásgeirsson er með 250 potta á lager. mbl.is/Árni Sæberg

Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiskikóngurinn eins og hann er gjarnan kallaður, í höfuðið á fiskbúð sem hann rekur á Sogavegi í Reykjavík, hefur ferðast vítt og breitt um landið á húsbíl í sumar og selt heita potta með góðum árangri. Segist Kristján í samtali við Morgunblaðið hafa selt 600 potta á síðasta ári og útlit sé fyrir svipaða og jafnvel meiri sölu í ár.

„Ég er búinn að selja heita potta núna í 15 ár samhliða fiskinum. Ég fer gjarnan í „pottagírinn“ um miðjan apríl og er á fullu fram í miðjan október. Elsti sonur minn rekur fyrir mig Fiskikónginn á sumrin. Ég mæti þangað á morgnana og vinn til 10 en sný mér þá að heitu pottunum,“ segir Kristján.

Pottana hefur Kristján selt í gegnum heimasíðuna heitirpottar.is og í gegnum verslun sína á Höfðabakka 1 við Gullinbrú, auk þess að selja þá í húsbílnum, eins og fyrr sagði. „Ég og eiginkonan vorum búin að eiga þennan húsbíl í sex ár, risastóran amerískan trukk. Þá byggðum við okkur sumarbústað og hún vildi selja bílinn en ég var tregur til. Niðurstaðan var að ég lét fyrirtækið kaupa bílinn og fékk svo þá hugmynd að leigja mér kerru og fara á bílnum í söluferð til Akureyrar. Svo fór þetta að vinda upp á sig og ég fór að fara í fleiri söluferðir. Nú er þetta eiginlega orðið fullt starf hjá mér.“

Eltir sólina

Þegar Morgunblaðið hafði samband við Kristján var hann staddur á Ólafsvík. Hann segist sjaldnast vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Hann elti sólina, enda er að hans sögn best að selja heita potta í góðu veðri. „Ég er alltaf með sex óselda potta í bílnum þegar ég fer af stað en tek líka pantanir og sel af lagernum. Í gær var ég með fulla kerru af pottum, eða sex potta, en nú eru tveir farnir. Ég er yfirleitt tvo daga að klára pottana úr kerrunni.“

Húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, 18 metrar að lengd. „Til samanburðar er gámaflutningabíll með 40 feta gám aðeins 12 metra langur. Það versta við þetta er að ef ég kem heim á bóndabæi eða botnlanga í hverfum er erfitt að snúa við. Ég er orðinn algjör meistari í að bakka bílnum.“

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK