Færa 111 flugmenn niður í 50% starf í vetur

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að fordæmalaus staðan með …
Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að fordæmalaus staðan með MAX-vélarnar hafi óhjákvæmilega haft áhrif á áhafnaþörf félagsins og að félagið hafi þurft að bregðast við með því að aðlaga fjölda í áhöfnum flugflotanum. mbl.is/Eggert

Vegna áframhaldandi óvissu og til að lágmarka áhrif kyrrsetningar MAX-vélanna á rekstur Icelandair hefur flugfélagið ákveðið að lækka starfshlutfall 111 flugmanna niður í 50% og færa 30 flugstjóra tímabundið í starf flugmanns. Þetta verður gert á 4 mánaða tímabili yfir háveturinn, frá 1. desember 2019 til 1. apríl 2020.

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að fordæmalaus staðan með MAX-vélarnar hafi óhjákvæmilega haft áhrif á áhafnaþörf félagsins og að félagið hafi þurft að bregðast við með því að aðlaga fjölda í áhöfnum flugflotanum. Sem kunnugt er gerir Icelandair ekki ráð fyrir því að taka MAX-vélar félagsins til rekstrar fyrr en í upphafi næsta árs.

Í dag starfa tæplega 550 flugmenn og flugstjórar hjá Icelandair og hafa þessar tímabundnu breytingar sem flugfélagið kynnir í dag því áhrif á rúman fimmtung flugmanna félagsins, en áður höfðu störf yfir 100 flugmanna til viðbótar þegar tekið breytingum fyrir veturinn. Félagið greip þó ekki til uppsagna flugmanna til að mæta árstíðasveiflum eins og tíðkast hefur.

„Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hafa á þessu ári unnið saman að því að skapa tækifæri til þess að takast á við sveiflur í áhafnaþörf félagsins með öðrum leiðum en áður hefur tíðkast,“ segir í tilkynningu Icelandair, sem lesa má í heild sinni hér að neðan.

Fréttatilkynning Icelandair:

„Eins og áður hefur komið fram gerir Icelandair ekki ráð fyrir því að taka Boeing 737-MAX flugvélar á ný inn í rekstur félagsins fyrr en í byrjun næsta árs. Upphaflega gerði félagið ráð fyrir níu slíkum vélum í flota sínum á þessu ári. Kyrrsetningin veldur jafnframt óvissu varðandi afhendingu fimm nýrra MAX-véla sem áætlaðar voru til afhendingar snemma á næsta ári. Um er að ræða fordæmalausa stöðu sem hefur umtalsverð neikvæð áhrif á rekstur félagsins sem og flugáætlun í vetur. Óhjákvæmilega hefur þessi staða áhrif á áhafnaþörf félagsins og þarf félagið að bregðast við með því að aðlaga fjölda áhafnameðlima flugflota félagsins.

Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hafa á þessu ári unnið saman að því að skapa tækifæri til þess að takast á við sveiflur í áhafnaþörf félagsins með öðrum leiðum en áður hefur tíðkast og nú þegar hafa störf tæplega 100 flugmanna tekið breytingum yfir veturinn.

Í ljósi áframhaldandi óvissu og til að lágmarka áhrif kyrrsetningar MAX-vélanna á rekstur Icelandair, mun félagið grípa til frekari ráðstafana sem fela í sér tímabundnar breytingar hjá hópi flugmanna og flugstjóra á fjögurra mánaða tímabili, frá 1. desember 2019 til 1. apríl 2020. Aðgerðirnar felast í því að 111 flugmenn færast niður í 50% starf og 30 flugstjórar verða færðir tímabundið í starf flugmanns. Í dag starfa tæplega 550 flugmenn og flugstjórar hjá félaginu.

Hvað varðar stöðu mála vegna Boeing 737 MAX-flugvéla hefur yfirgripsmikið og vandað ferli, sem er í höndum alþjóðaflugmálayfirvalda, staðið yfir síðan vélarnar voru kyrrsettar fyrr á þessu ári. Sú vinna fer fram í samvinnu við Boeing og þau flugfélög sem eru með MAX-vélar í rekstri og er það hagsmuna- og forgangsmál allra hlutaðeigandi að tryggja öryggi vélanna og koma þeim aftur í rekstur.

Icelandair mun, hér eftir sem hingað til, leggja höfuðáherslu á að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu. Félagið er þegar í viðræðum við Boeing um að fá það fjárhagslega tjón sem hlotist hefur af kyrrsetningu vélanna bætt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK