Tap af rekstri Árvakurs í fyrra

Höfuðstöðvar Árvakurs eru í Hádegismóum.
Höfuðstöðvar Árvakurs eru í Hádegismóum. mbl.is/Golli

Árvakur hf., útgefandi Morgunblaðsins, mbl.is og K100, var rekinn með 415 milljóna króna tapi árið 2018, sem er töluvert meira tap en árið á undan, þegar reksturinn var einnig afar erfiður. Afkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var neikvæð um 238 milljónir króna. Tekjur jukust um 110 milljónir króna og námu 3,8 milljörðum. Gjöld jukust mun meira, en þar vegur launakostnaður langþyngst, sem skýrir versnandi afkomu á milli ára

„Ráðist hefur verið í umfangsmiklar aðgerðir til að hagræða í rekstri félagsins og eru þær farnar að skila umtalsverðum árangri á síðustu mánuðum. Engu að síður er rekstrarumhverfið enn erfitt, eins og ítrekað hefur komið fram í opinberri umræðu,“ segir Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs. „Samkeppnin við Ríkisútvarpið hefur orðið sífellt erfiðari, en neikvæð umræða á vinnumarkaði, sem enn heldur áfram þó að stærstu aðilar á vinnumarkaðnum hafi samið, hefur auk stórra áfalla í atvinnulífinu haft verulega neikvæð áhrif á auglýsingamarkaði og þar með á rekstur fjölmiðla.

Erfitt rekstrarumhverfi breytir því þó ekki að miðlar Árvakurs standa mjög sterkt um þessar mundir og ná augum og eyrum meira en níu af hverjum tíu landsmönnum, sem gerir Árvakur að öflugasta fjölmiðlafyrirtæki landsins. Og Árvakur hefur þrátt fyrir rekstrarumhverfið haldið áfram að ráðast í breytingar og nýjungar til að bæta þjónustu við notendur miðlanna, nú síðast með miklum breytingum á mbl.is eins og landsmenn sáu fyrir réttri viku.“

Eignir Árvakurs hf. breyttust lítið á milli ára, voru rúmir tveir milljarðar króna um áramót, og eiginfjárhlutfall var rúm 28%. Ákveðið hefur verið að ráðast í hlutafjáraukningu til að treysta fjárhagsstöðu félagsins og er unnið við að ljúka henni um þessar mundir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK