Ballarin með blaðamannafund um kaup á eignum WOW air

Michelle Ballarin tjórnarformaður USAerospace Associates LLC.
Michelle Ballarin tjórnarformaður USAerospace Associates LLC. mbl.is/Kristinn Magnússon

Michele Ballarin, stjórnarformaður USAerospace Associates LLC, hefur boðað til blaðamannafundar á Grillinu á Hótel Sögu klukkan 13:30. Fram kemur í fréttatilkynningu frá lögmanni hennar að fundarefnið sé kaup félagsins á eignum WOW air af skiptastjórum þrotabúsins.

Ballarin og fyrirtæki hennar USAerospace Associates LLC rötuðu í fréttirnar í sumar þegar fréttist af áhuga hennar á að endurreisa WOW air. Sagði Ballarin þá í viðtali við fjölmiðla að hún hefði áætlanir um að hafa höfuðstöðvar hins endurreista flugfélags á Dulles-flugvellinum í Washington. 

Síðar var greint frá því að kaupunum hefði verið rift vegna dráttar á greiðslu á eignum þrotabúsins og greindi Ballarin í kjölfarið frá því að hún stefndi enn ótrauð á að endurvekja WOW air.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK