Umboð stjórnar verði endurnýjað á hluthafafundi

Stoðir hf. eiga 1.200.000.000 hluti í Símanum hf. sem nemur …
Stoðir hf. eiga 1.200.000.000 hluti í Símanum hf. sem nemur 12,97% af útgefnu hlutafé félagsins. mbl.is/Hari

Stjórn Símans hefur boðað til hluthafafundar þar sem efnt verður til stjórnarkjörs að beiðni Stoða hf., en félagið telur að vegna verulegra breytinga sem hafa orðið á eignarhaldi Símans undanfarið sé rétt að umboð stjórnar verði endurnýjað og ný stjórn kosin.

Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til kauphallarinnar.

Stoðir hf. eiga 1.200.000.000 hluti í Símanum hf. sem nemur 12,97% af útgefnu hlutafé félagsins og 13,63% af atkvæðabæru hlutafé, þegar tekið hefur verið tillit til fjölda eigin bréfa félagsins í lok 11. október 2019.

Í 85. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 og lið 10.2 í samþykktum Símans hf. kemur fram að boða skuli til hluthafafundar ef hluthafar, sem ráða yfir minnst 5% hlutafjárins, krefjast þess skriflega og greina frá fundarefni. Samkvæmt sömu greinum skal boða til fundar innan 14 daga. Samkvæmt samþykktum Símans hf. skal boðað til hluthafafundar minnst þremur vikum fyrir fund og mest fjórum vikum fyrir fund. Stjórn félagsins mun nú undirbúa boðun hluthafafundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK