Vextir á íbúðalánum lækka

Vextir á íbúðalánum hafa lækkað um 0,5 til 1,7 prósent …
Vextir á íbúðalánum hafa lækkað um 0,5 til 1,7 prósent frá því í maí í kjölfar vaxtalækkana Seðlabankans um 1,25%. mbl.is/Sigurður Bogi

Vextir á íbúðalánum hafa lækkað um 0,5 til 1,7 prósent frá því í maí í kjölfar vaxtalækkana Seðlabankans um 1,25%. Hins vegar hefur dregið úr nýjum íbúðalánum bæði frá fyrri mánuði og frá sama mánuði árinu áður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir október. 

Mikill munur er þó á samsetningu nýrra lána en ný óverðtryggð lán hafa aukist um 41% á milli ára meðan verðtryggð lán hafa dregist saman um 51%.

Íbúðaverð hækkar mest á landsbyggðinni

Í skýrslunni kemur einnig fram að árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 2,4% í ágúst samkvæmt vísitölu paraðra íbúðaviðskipta. 

Árshækkun íbúðaverðs í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins nam 6,3% og annars staðar á landsbyggðinni um 3%. Meðalsölutími íbúða hefur haldist nokkuð stöðugur á árinu en meðalsölutími nýrra íbúða lækkaði aftur eftir að hafa hækkað í maí síðastliðnum.

5,2% árshækkun á leiguverði

Talsverður munur er á þróun leiguverðs eftir landssvæðum. Árshækkun á leiguverði mældist 5,2% á höfuðborgarsvæðinu í ágúst á sama tíma og almennt verðlag hækkaði um 3%. Á Suðurnesjum lækkaði leiguverð hins vegar á milli ára, eftir mjög kröftugar hækkanir árið þar á undan. Leiguverð á Suðurlandi hefur haldið áfram að hækka verulega eða um 17,2%, en á Austurlandi hefur það lækkað um 14% frá sama tíma árið 2018.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK